Fordæma fangelsun blaðamanna Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 24. nóvember 2018 11:00 Dómnum yfir blaðamönnunum hefur verið harðlega mótmælt. Nordicphotos/AFP
Samtök bæði lögfræðinga og blaðamanna í Mjanmar afhentu Win Myint, forseta ríkisins, bréf í gær þar sem lýst var áhyggjum af sakfellingu og fangelsun tveggja blaðamanna Reuters. Þeir Wa Lone og Kyaw Soe Oo voru dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir brot á lögum um ríkisleyndarmál. Blaðamennirnir höfðu verið að vinna umfjöllun um stríðsglæpi mjanmarska hersins gegn þjóðflokki Róhingja. Nánar tiltekið snerist umfjöllunin um morð á tíu Róhingjum og leiddi rannsókn blaðamannanna í ljós að jafnt hermenn sem almennir borgarar hafi þar verið að verki. Alls flúðu 720.000 Róhingjar til Bangladess þegar aðgerðir hersins stóðu yfir í Rakhine-ríki Mjanmar. Rannsakendur á vegum SÞ hafa sakað herforingja um þjóðarmorð en saga ofsókna gegn Róhingjum er áratugalöng. „Ríkisleyndarmálalöggjöfin var sett til þess að fyrirbyggja njósnir á sínum tíma. Hún er ekki viðeigandi í nútímanum og þarfnast endurskoðunar. Sjö ára dómur yfir blaðamönnunum er alvarleg tálmun við starf fjölmiðla og rétt almennings á upplýsingum,“ sagði í bréfinu. Þar sagði enn fremur að umfjöllun blaðamannanna hafi átt skýrt erindi við almenning og að báðar hliðar málsins hefðu komið skýrt fram. Win Myint forseti sagði, er hann fékk bréfið, að hann þyrfti að skoða málið í samhengi við landslög. Málinu var áfrýjað til hæstaréttar fyrr í mánuðinum.
Asía Bangladess Birtist í Fréttablaðinu Fjölmiðlar Mjanmar Róhingjar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira