Betra jafnvægi á fasteignamarkaði en oft áður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. nóvember 2018 08:37 Fjöldi viðskipta með húsnæði á höfuðborgarsvæðinu var nokkuð stöðugur í sumar og mun meiri en á síðasta ári. vísir/vilhelm
Betra jafnvægi virðist nú ríkja á fasteignamarkaði en oft áður að því er segir í Hagsjá Landsbankans í dag. Í Hagsjánni kemur fram að grundvallarbreyting hafi orðið á þróun íbúðaverðs allt frá miðju ári 2017 þegar verðhækkanir nánast stöðvuðust. Frá þeim tíma hefur framboð nýrra íbúða aukist mikið og viðskiptum fjölgað í takt við það. „Fjöldi viðskipta með húsnæði á höfuðborgarsvæðinu var nokkuð stöðugur í sumar og mun meiri en á síðasta ári. Meðalfjöldi viðskipta síðustu 9 mánuði fram til september var um 620 viðskipti til samanburðar við u.þ.b. 560 viðskipti á sama tíma á síðasta ári og um 590 á árinu 2016. Viðskiptum hefur því fjölgað í takt við aukið framboð og betra jafnvægi virðist ríkja á markaðnum en oft áður,“ segir í Hagsjánni. Þar segir jafnframt að í nýútkominni þjóðhagsspá hagfræðideildar Landsbankans er reiknað með 4,3 prósenta hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu á milli áranna 2017 og 2018. „Það er veruleg breyting frá u.þ.b. 19% hækkun árið áður. Við reiknum svo með 4% hækkun á árinu 2019, 6% árið 2020 og 8% árið 2021. Meðalhækkun nafnverðs fasteigna á tímabilinu 2001-2017 var 8,8% þannig að segja má að skoðun okkar sé að hækkun fasteignaverðs nálgist sögulegt meðaltal á spátímabilinu,“ segir í Hagsjánni en hana má lesa í heild sinni hér.
Húsnæðismál Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira