Gera örvæntingafulla tilraun til að bjarga norskri freigátu eftir árekstur Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2018 10:18 Á myndum má sjá að mikið gat er á freigátunni og slagsíða á skipinu. AP/Marit Hommedal
Átta manns slösuðust lítillega þegar tvö skip rákust saman í Hörðalandi í morgun. Talsmaður norska hersins segir að freigátan KNM Helge Ingstad og olíuflutningaskipið Sola TS hafi rekist saman. Á myndum má sjá að mikið gat er á freigátunni og slagsíða á skipinu.NRK greinir frá því að norski herinn geri nú örvæntingarfulla tilraun til að bjarga skipinu. Alls voru 137 manns um borð í freigátunni og er búið að koma þeim öllum frá borði. Áreksturinn varð klukkan 4:26 að staðartíma í nótt, eða 3:26 að íslenskum tíma. Norskir fjölmiðlar segja að dráttarbátur hafi einnig átt þátt í árekstrinum. 25 manns voru um borð í olíuflutningaskipinu Sola TS frá Möltu og hefur þeim sömuleiðis verið komið frá borði. 625 þúsund lítrar olíu voru um borð í Sola TS þegar það lagði úr höfn við Stureterminalen og hafa um 10 þúsund lítrar olíu lekið úr skipinu.Skjáskot af NRKTók þátt í NATO-æfingunni Freigátan KNM Helge Ingstad hefur að undanförnu tekið þátt í Trident Juncture 18, æfingu NATO í Noregi sem staðið hefur síðan 25. september síðastliðinn og lýkur í dag. Trident Juncture er stærsta heræfing NATO frá árinu 1990 þar sem rúmlega 50 þúsund hermenn frá 31 aðildarríki NATO og samstarfsríkja taka þátt. Sextíu skip hafa tekið þátt í æfingunni. Freigátan KNM Helge Ingstad varð hluti norska sjóhersins árið 2009 og hefur meðal annars verið notuð til að koma efnavopnum frá Sýrlandi á árunum 2013 til 2014. Freigátan er 134 metra löng, 16,8 metra breið 32 metrar á hæð.
NATO Norðurlönd Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira