Handbolti

Þýskir fjölmiðlar sýna Petersson-feðgum mikinn áhuga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Flottir feðgar.
Flottir feðgar. mynd/löwen
Það þarf ekki að kynna stórskyttuna Alexander Petersson fyrir neinum en sonur hans, Lúkas, er bráðefnilegur knattspyrnumarkvörður sem gæti náð langt.

Alexander hefur átt frábæran handboltaferil og spilar enn með Þýskalandsmeisturum Rhein-Neckar Löwen. Lúkas er svo í markinu hjá öflugu unglingaliði Hoffenheim.

Á dögunum var gert innslag um þá feðga fyrir þýsku Sky-sjónvarpsstöðina og bæði Löwen og Hoffenheim fylgdust með.

„Lúkas fékk að ráða því alveg sjálfur hvaða leið hann fer í íþróttum. Það er þó tenging við handbolta þar sem hann er í marki og þarf að nota hendurnar,“ sagði Alexander meðal annars.

Hér má sjá skemmtilega umfjöllun Löwen um þá feðga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×