Barðist brotinn á báðum fótum við skröltorma á meðan hann sat fastur í yfirgefinni gullnámu Birgir Olgeirsson skrifar 19. október 2018 17:58 Það tók björgunarstarfsmenn um sex klukkutíma að ná honum upp úr námunni og flytja hann á sjúkrahús. MARICOPA COUNTY SHERIFFS OFFICE
Bandarískur karlmaður á sjötugsaldri drap þrjá skröltorma á meðan hann sat fastur í yfirgefinni námu brotinn á báðum fótum í tvo sólarhringa á vatns og matar. Maðurinn er hinn 62 ára gamli John Waddell sem ætlaði sér að síga um þrjátíu metra niður í gamla gullnámu þegar búnaðurinn brást og var fallið um 13 til 15 metrar. Það tók björgunarstarfsmenn um sex klukkutíma að ná honum upp úr námunni og flytja hann á sjúkrahús. Vinur hans, Terry Schrader, sagði við fjölmiðla að Waddell hefði hringt í hann á mánudag og sagt honum að hann ætlaði í námuna í leit að gulli og verðmætum málmum. Hann bað hann um að líta eftir sér ef hann hefði ekki snúið aftur degi síðar. Schrader fór að námunni á þriðjudag, sem er á landareign Waddell í Aguila í Arizona-ríki Bandaríkjanna, um 145 kílómetrum norðvestur af borginni Phoenix. Náman er á afskekktum stað og ekkert farsímasamband þar. Schrader varð því að keyra dágóðan spöl til að gera björgunarfólki viðvart. Annar vinur Waddell, Mike Balowski, sagði við fjölmiðla að hann teldi að Waddell hefði drepið snákana því hann hefði verið svo hungraður. Í Arizona-ríki lifa um þrettán tegundir af skröltormum sem eru eitraðir og getur bit þeirra dregið fullorðna manneskju til dauða.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira