„Lognið á undan storminum“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. október 2018 07:26 Það verður ágætis veður í dag en von er á haustlægð á morgun. vísir/vilhelm
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands er tíðindalítill dagur í vændum í veðrinu í dag en spáð er hvassviðri eða stormi og úrkomu víða á morgun þegar lægð kemur að landinu úr suðri. Veðrið í dag er í raun lognið á undan storminum: „Það er tíðindalítill dagur í vændum í veðrinu og í raun er þetta lognið á undan storminum. Vestlæg eða breytileg átt í dag með vætu fyrir norðan, en að mestu þurrt sunnan heiða. Léttir víða til í kvöld með frekar hægum vindi sem eru kjöraðstæður fyrir kalda nótt, enda útlit fyrir næturfrost um mest allt land, einkum inn til landsins,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun verður svo einna hvassast með suðurströndinni þar sem útlit er fyrir að meðalvindur geti farið upp í 25 metra á sekúndu í Vestmannaeyjum, undir Eyjafjöllum og í Öræfum. „Hviður við fjöll geta hæglega farið í 35 m/s á svæðinu og vert að gæta að lausamunum og bílum sem taka á sig vind. Bent er á gular viðvaranir sem eru í gildi,“ segir á vef Veðurstofunnar.Veðurhorfur í dag og næstu daga:Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s með morgninum. Sums staðar slydda eða rigning með köflum á N-verðu landinu, en þurrt að kalla S-til. Hiti 3 til 8 stig í dag, en kólnar í kvöld með næturfrosti um mest allt land.Gengur í austan og norðaustan 13-23 m/s á morgun með rigningu eða slyddu, hvassast S-lands. Hiti 1 til 9 stig, mildast syðst.Á miðvikudag:Gengur í austan og norðaustan 13-23 m/s með rigningu eða slyddu, hvassast sunnanlands. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.Á fimmtudag:Snýst í hvassa norðanátt með slyddu eða snjókomu á norðanverðu landinu, rigningu með A-ströndinni, en styttir upp S-lands. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 7 stig syðst. Hægari um kvöldið.Á föstudag:Hæg vestlæg eða breytileg átt og léttir víða til, en él á stöku stað við ströndina. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira