Innlent

Skjálfti upp á 3,4

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Skjálftinn var í Vatnajökli. Myndin er úr safni.
Skjálftinn var í Vatnajökli. Myndin er úr safni. Vísir

Jarðskjálfti upp á 3,4 reið yfir rétt austan við Hamarinn á Vatnajökli nú í hádeginu.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands reið skjálftinn yfir klukkan sextán mínútur yfir tólf og var 3,4 að stærð.

Skjálftinn var á milli Hamarsins og Skaftárkatla í Vatnajökli sem er virkt jarðskjálftasvæði. Síðast varð skjálfti á þessu svæði yfir 3 að stærð þann 10. desember 2025. Þá var hrina í gangi á svæðinu og mældist stærsti skjálftinn í þeirri hrinu 3,94 þann 6. desember 2025.

„Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftans hafi orðið vart í byggð og enginn órói fylgir,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×