Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Agnar Már Másson skrifar 3. október 2026 20:44 Þórður Hugo Björnsson, Jón Hjörtur Örn Kröyer varaformaður, Sólrún Lára Flóvenz, Salma Björk Önnudóttir formaður, Þorkell Ingólfsson, Aldís Dröfn Ingvarsdóttir og Nói Þrastarson. Aðsend Salma Björk Önnudóttir var í dag kjörin nýr formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins á aukaaðalfundi sem hreyfingin hélt í Hamraborg. Jafnframt samþykkti hreyfingin ályktun sem fjallar meðal annars um skólamál, hinsegin mál, útlendingamál og íslenska tungu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýkjörnum formanni. Salma, sem er 27 ára, hefur setið í stjórn hreyfingarinnar um nokkurt skeið en hún tekur nú við formennsku af hinum 32 ára Antoni Sveini McKee sem hefur verið formaður ungliðahreyfingarinnar síðustu tvö ár. Nokkuð hefur farið fyrir Sölmu nýlega í Ung gegn ESB-hreyfingunni í sumar þar sem ungliðar víða af hinu pólitíska litrófi beittu sér fyrir því að Íslendingar kysu „nei“ hinn 29. ágúst síðastliðinn. Jón Hjörtur Kröyer var kjörinn varaformaður ungra Miðflokksmanna á aukaaðalfundinum. Aðrir stjórnarmenn eru Þórður Hugo Björnsson, Aldís Dröfn Ingvarsdóttir, Sólrún Lára Flóvenz, Þokell Ingólfsson og Nói Þrastarson. Varamenn eru tveir, Dagur Jónsson og Samúel Guðmundsson, en sá síðarnefndi vakti mikla athygli í sumar þegar orðaskak hans við áhrifavaldinn Rabbi Schmuley rataði í kastljós heimsmiðlanna. Hafna „skammsýnni einstaklingshyggju“ Auk þess sem ný stjórn var kjörin samþykkti ungliðahreyfingin ályktun í fimm liðum: íslenska fjölskyldan, æskan fyrst, leyfum börnum að vera börn, hjálpum þeim heim og íslenskt mál. Ályktunina í heild sinni má nálgast neðst í fréttinni. Vert er að nefna að ungir Miðflokksmenn eiga enn eftir að birta ályktun landsþings ungliðahreyfingarinnar frá því í vor. Hvað íslensku fjölskylduna varðar segjast ungu Miðflokksmenn í ályktun sinni „hafna skammsýnni einstaklingshyggju“ sem líti fram hjá hagsmunum þjóðfélagsins. Þeir vilja að byggt sé upp öruggt og barnvænt þjóðfélag þar sem ungt fólk njóti atvinnutækifæra og húsnæðis á viðráðanlegu verði. Þá mæla þeir gegn skóla án aðgreiningar og segjast vilja tryggja stöðu sérskóla og sérdeilda til að tryggja þeim nemendum sem ekki þrífist í hefðbundnu skólaumhverfi þá aðstoð sem þeir þurfi og sömuleiðis tryggja að afburðanemendur fái tækifæri til að þroska hæfileika sína. Þeir gagnrýna aðalnámskrá frá 2011 með vísan í niðurstöður PISA-kannana og leggja til að tekin verði upp námskrá í anda námskrár frá 1999 og að áhersla verði lögð á reikning, réttritun og lestur. Hafna „pólitískri innrætingu“ í skólum Þá hafna þeir því að utanaðkomandi samtök séu fengin „til að kenna börnum tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“, segir í ályktuninni. Kynfræðsla eigi að vera í höndum kennara og foreldra og börn eigi að vera óhult fyrir „pólitískri innrætingu í skólastofunni“. Þeir segjast sömuleiðis hafna kynþroskabælandi meðferðum og krosshormónameðferðum fyrir börn undir 18 ára og segja þær tilraunameðferðir með alvarlegar og varanlegar afleiðingar. „Hjálpum þeim heim“ er síðan yfirskrift kafla ályktunarinnar er snýr að útlendingamálum en þar segja þeir að Íslendingar eigi ekki að taka við fjölda fólks frá fjarlægum menningarheimum og hafna frekari móttöku á grundvelli flóttamannasjónarmiða. „Hjálpum frekar þjáðum þjóðum með hjálparstarfi í heimahögum,“ skrifa þeir. Jafnframt segja Miðflokksmenn að þeir sem hafi fengið tímabundið skjól á Íslandi þurfi aðstoð og hvatningu við að snúa aftur til síns heima. Nærtækt dæmi sé Sýrland þar sem borgarastríði lauk í desember 2024. Þegar aðrar leiðir eru ekki færar þurfi að koma til brottvísana. Þeir telja þá nauðsynlegt að herða verulega að kröfum til nýrra ríkisborgara, meðal annars um langa dvöl í landinu og þekkingu á íslenskri tungu og menningu. „Gestir og nýir íbúar á Íslandi þurfa að hlíta lögum landsins í einu og öllu og laga sig að okkar siðum og menningu,“ skrifar Miðflokksmenn. „Við styðjum bann við íslömskum klæðaburði sem hefur það hlutverk að undiroka konur og takmarka þátttöku þeirra í samfélaginu. Réttindi kvenna eru ekki umsemjanleg í þágu framandi menningar.“ Þá segja þeir að dýraverndarsjónarmið vegi þyngra en „framandi trúarsiðir“ og segjast ekki styðja tilslakanir gagnvart halal- eða kosher-slátrun. Vilja bara íslensku Að lokum víkja þeir að íslenskri tungu þar sem í ályktuninni segir að öll stjórnsýsla, þjónusta – bæði einkaaðila og hjá hinu opinbera – og allar auglýsingar skuli vera á íslensku. „Sem stendur veitir hið opinbera túlkaþjónustu í ótakmarkaðan tíma í heilbrigðisþjónustu og á öðrum sviðum. Þetta er dýrt og dregur úr hvata fólks til að læra íslensku. Við viljum að almenna reglan sé að fólk greiði sjálft fyrir þá túlkun sem það þarf eftir dvöl í landinu í meira en 12 mánuði,“ álykta Miðflokksmenn sem bæta svo við að þeir leggi stoltir rækt við íslenska tungu. Tengd skjöl ÁlyktunÁLYKTUNSINNISækja skjal
Miðflokkurinn Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira