Skoðun

Sókn á sviði menntunar

Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar

Haustið skipar sérstakan sess í huga kennara og annarra stétta sem starfa með börnum og ungmennum í skóla- og frístundastarfi. Börn flykkjast í skólann sinn, starfið fer af stað með tilheyrandi annríki og eftirvæntingu, púsla þarf saman skóla- og frístundastarfi, mynda tengsl og byggja brýr. Þetta haust fer vel af stað á Menntavísindasviði Háskóla Íslands en á sviðinu fer fram menntun leik-, grunn- og framhaldsskólakennara, þroskaþjálfa, tómstundafræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga og uppeldis- og menntunarfræðinga. Nemendum fjölgar verulega sem stefna á kennslu í leik-, grunn- eða framhaldsskólum, og það fjölgaði á námsleiðum fyrir fólk með fjölbreytta menntun að baki sem vill bæta við sig kennsluréttindum auk þess sem kennarar og annað fagfólk sækir til okkar í starfs- og diplómanám.

Breytingar á kennaranámi

Þrátt aukna aðsókn í kennaranám er mikilvægt að fjölga nemendum enn frekar. Alvarlegur skortur á leikskólakennurum er um land allt og ekki hefur verið eðlileg nýliðun í hópi grunnskólakennara landsins. Undanfarnar vikur greini ég mikla samstöðu meðal stjórnvalda, fagfélaga, sveitarfélaga og háskólanna um mikilvægi kennaramenntunar og nauðsyn þess að finna leiðir til að styðja við nemendur í kennaranámi. Á Menntavísindasviði höldum við áfram að þróa og efla námið í nánu samstarfi við hagsmunaaðila.



Nú í haust hófst nám í fjórum nýjum deildum, sem bjóða upp á fjölbreyttar leiðir til kennsluréttinda. Ný deildarskipting endurspeglar betur heildstæða sýn á menntun og mikilvægi þess að fjölbreyttar fagstéttir taki höndum saman um velferð og vöxt barna og unglinga í skóla- og frístundastarfi. Þá hafa opnast fleiri dyr fyrir þrepaskipt nám, sveigjanlegt nám, styttri námsleiðir og nám með starfi. Samhliða þessum nýjungum teljum við mikilvægt að koma á samstarfi milli háskóla og sveitarfélaga um markvissan stuðning við nýútskrifaða kennara.

Sterk tengsl við vettvang og samfélag

Hlutverk Menntavísindasviðs er að undirbúa fagfólk til starfa í menntakerfinu og að standa fyrir rannsóknum sem renna stoðum undir menntakerfi framtíðarinnar. Rík áhersla er lögð á tengsl við væntanlegan starfsvettvang og að nemendur fari í starfsþjálfun í skóla, félagsmiðstöðvar og aðrar stofnanir samfélagins. Á vettvangi gefst ómetanlegt tækifæri fyrir nemendur að kynnast daglegu starfi og láta reyna á hæfni sína og þekkingu undir handleiðslu leiðsagnarkennara.



Reynt fagfólk á sviði menntunar, gjarnan með áratuga starfsreynslu, stundar framhaldsnám við sviðið til að þróa og dýpka starf sitt og þekkingu. Það kemur inn með ómetanlegt sjónarhorn og Menntavísindasvið væri fátækt án þeirra. Það er dýrmætt fyrir háskólastofnun að vera í jafn þéttum tengslum við starfandi fagstéttir. Markmið okkar á næstu misserum er að auka framboð á námi sem kennarar og aðrir fagaðilar geta nýtt sér til starfsþróunar. Þá eru fjölmörg rannsóknar- og þróunarverkefni í gangi þar sem fræðimenn starfa með kennurum og fagfólki að innleiðingu nýrra starfshátta.

Stöndum saman um menntakerfið

Við stöndum frammi fyrir margvíslegum áskorunum í samfélaginu í dag. Umhverfisbreytingar af völdum hnattrænnar hlýnunar kalla á gjörbreyttar lífsvenjur; fjórða iðnbyltingin, sem þegar hefur hafið innreið sína, mun móta nýja atvinnuhætti og hefur þegar kollvarpað samskiptaformi okkar; alvarlegar áskoranir í heimsmálum, s.s. efnahagslegur óstöðugleiki, ófriður og aukinn fjöldi flóttamanna, krefjast ábyrgrar þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi.



Alhliða menntun sem felur í sér „hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða“, líkt og Stephan G. orðaði það, er grundvöllur þess að unga fólkið okkar hafi forsendur til að takast á við þessi mikilvægu lífsverkefni. Stöndum saman um menntun barnanna okkar, hvetjum þá til dáða sem ákveða að helga sig kennslu og menntastörfum og styðjum við starfsumhverfi starfsfólks og barna í skóla- og frístundastarfi.



Höfundur er forseti MenntavísindasviðsHáskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×