Bretar íhuga að banna sölu orkudrykkja til barna Kjartan Kjartansson skrifar 30. ágúst 2018 10:12 Ofneysla orkudrykkja hefur verið tengd við offitu barna, svefnleysi, tannskemmdir og höfuðverki. Kennarar hafa talið þá stuðla að agaleysi í skólastofunni. Vísir/Getty
Forsætisráðherra Bretlands segir að banna ætti að selja orkudrykki til barna undir átján ára aldri vegna skaðlegra áhrifa þeirra á heilsu barnanna. Ríkisstjórnin hefur óskað eftir umsögnum um áform sín um aldurstakmark á sölu drykkjanna. Mikið magn sykurs og koffíns er að finna í orkudrykkjum. Þeir hafa verið tengdir við offitu barna og aðra sjúkdóma, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Bresk börn eru á meðal áköfustu neytenda orkudrykkja í Evrópu. Bannið myndi ná til drykkja sem innihalda 150 millígrömm af koffíni eða meira í lítra. Orkudrykkir innihalda oft um 80 millígrömm í 250 millílítra dós. Það er meira en tvöfalt koffínmagnið í 330 millílítra kókdósum. Bresk stjórnvöld hafa óskað eftir umsögnum um við hvaða aldur eigi að miða: sextán eða átján ára aldur. „Offita barna er eitt helsta heilsufarsvandamálið sem þetta land stendur frammi fyrir og þess vegna grípum við til áhrifaríkra aðgerða til þess að daraga úr magni sykurs sem ungt fólk neytir og hjálpa fjölskyldum að velja heilbrigðari kosti,“ segir Theresa May, forsætisráðherra.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira