Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. september 2026 22:59 Maurarnir voru notaðir sem skraut í eftirrétt. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Eigandi eins þekktasta veitingastaðar Suður-Kóreu þarf ekki að dvelja í fangelsi eftir að eftirréttur með maurum var borinn fram á veitingastaðnum. Saksóknararnir kröfðust fangelsisdómsins.
Eigandi staðarins var ákærður í júlí fyrir að hafa notað maura í matreiðslu á veitingastaðnum, sem heitir Evett og er með tvær Michelin-stjörnur. Hann játaði að maurarnir hefðu verið notaðir í aðeins nokkra rétti og þá aðallega til skrauts. Viðskiptavinirnir hafi verið látnir vita og getað valið um annað skraut. Evett veitingastaðurinn var stofnaður af Joseph Lidgerwood sem er þekktur ástralskur kokkur. Hann er andlit veitingastaðarins út á við en Ginny Kim, eiginkona Lidgerwood, er skráð sem eigandi staðarins og var hún því sakborningur. Lög um matvælaöryggi í Suður-Kóreu banna notkun skordýra í matreiðslu fyrir utan tíu ákveðnar skordýrategundir. Saksóknarar kröfðust þess að Kim yrði vistuð í fangelsi í eitt ár og ætti að greiða tuttugu milljónir won, tæpar tvær milljónir króna, í sekt. Þeir áætluðu að eftirrétturinn með maurunum hefði verið borinn fram fyrir 12.274 viðskiptavini sem samsvaraði rúmum 49 þúsund maurum. Lögmenn Kim sögðu hins vegar að aðeins sextíu prósent viðskiptavina hefðu þegið maurana sem skraut. Dómarinn taldi brotið ekki hafa verið léttvægt samkvæmt The Guardian og vísaði til þess hversu lengi réttirnir hefðu verið seldir og prófana sem sýndu að magn þungmálma í maurunum væri yfir leyfilegum mörkum. Hins vegar tók hann tillit til þess að eigandinn játaði brotið og væri ekki með sakaferil. Veitingastaðnum sjálfum var gert að greiða tíu milljónir won í sekt, tæpar níu hundruð þúsund íslenskar krónur, og eigandanum fimmtán milljónir won, rúma 1,3 milljónir króna.
Suður-Kórea Matur Veitingastaðir Michelin Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Segir tímabært að Úkraína fái sér nýjan forseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Sjá meira