Tengdaforeldrar Trump fá ríkisborgararétt þrátt fyrir gagnrýni hans Kjartan Kjartansson skrifar 10. ágúst 2018 10:10 Knavs-hjónin eru orðin bandarískir ríkisborgarar en þau eru upprunin í Slóveníu. Vísir/EPA
Amalija og Viktor Knavs, foreldrar Melaniu Trump, eiginkonu Bandaríkjaforseta, fengu bandarískan ríkisborgararétt í gær. Réttinn fengu þau í gegnum heimild í bandarískum útlendingalögum sem Trump forseti hefur ítrekað fundið flest til foráttu. Svokallaður „keðjuinnflutningur“ (e. chain immigration) þar sem innflytjendur í Bandaríkjunum geta fengið landvistarleyfi fyrir fjölskyldu sína hefur verið Donald Trump Bandaríkjaforseta þyrnir í augum. Hann hefur krafist þess að kerfið verði aflagt og þess í stað verði landvistarleyfi og ríkisborgararéttur veittur á grundvelli verðleika þannig að sérfræðingar komi frekar til landsins en fjölskyldur innflytjenda. Forsetinn virðist þó ekki hafa sett sig upp á móti því að hans eigin tengdaforeldrar nýttu sér þessa heimild. Þau sóru ríkisborgaraeið við athöfn í New York í gær, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Lögmaður Knavs-hjónanna, sem eru upprunin í Slóveníu, segir að þau hafi fram að þessu búið í Bandaríkjunum á grænu korti sem þau gátu fengið vegna stöðu dóttur þeirra. Melania Trump hefur verið bandarískur ríkisborgari frá árinu 2006.
Bandaríkin Donald Trump Slóvenía Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira