Hótel Adam í kastljósi fjölmiðla síðan 2016
Í febrúar 2016 bókaði blaðamaður Vísis gistingu á hótelinu eftir að brösulega hafði gengið að fá svör frá eiganda þess. Ýmislegt kom á óvart í heimsókninni og um svipað leyti gerði heilbrigðiseftirlitið margvíslegar athugasemdir við aðbúnað á hótelinu. Árið 2017 var fyrirtækið sem heldur utan um rekstur hótelsins, R. Guðmundsson ehf. dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða fyrrverandi starfsmanni hótelsins 2,3 milljónir vegna vangoldinna launa.
Í maí á þessu ári fór Íslandsbanki fram á að húsinæðið yrði sett á nauðungarsölu vegna skulda upp á tæpar 25 milljónir króna. Þá hefur Stundin fjallað um málefni hótelsins að undanförnu þar sem meðal annars er rætt við fyrrverandi starfsmann sem segist hafa verið niðurlægð og svikin af vinnuveitendum sínum.
Rekstrarleyfi hótelsins rann út í nóvember 2017 en síðastliðinn föstudag fengu eigendur hótelsins 48 klukkustunda frest til að undirbúa lokun þess. Síðdegis í dag mætti lögregla á staðinn og innsiglaði reksturinn. Hvorki fulltrúar lögreglu, sýslumanns, né Ragnar Guðmundsson, eigandi hótelsins, vildu veita fréttastofu viðtal í dag en Ragnar bað fjölmiðla að yfirgefa hótelið.
Sýslumaður hefur umsókn um endurnýjun rekstrarleyfis til umfjöllunar en ljóst er að rekstur hótelsins liggur niðri, að minnsta kosti þar til afgreiðsla embættisins liggur fyrir.
Tengdar fréttir
Heimsókn á Hótel Adam: „Ég drekk úr krananum“
Símaskrá frá 2012, latexhanski á reykskynjara, ólystugur morgunverður og kalt kaffi koma við sögu í heimsókn blaðamanns Vísis í gær.
Ragnar þarf að reiða fram 25 milljónir til að halda Hótel Adam
Íslandsbanki hefur farið fram á að húsið á Skólavörðustíg 42 verði sett á nauðungarsölu.
Kjör á AdaM Hótel langt undir lágmarkslaunum
Í atvinnuauglýsingu frá AdaM Hótel sem stíluð er á Tékka er auglýst eftir starfskrafti fyrir laun undir lágmarkslaunum.
Lögreglan rannsakar vinnumansal á Hótel Adam
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál erlendar konu sem var haldið nauðugri í starfi á Hótel Adam.
Lögreglan lokar herbergjum á Hótel Adam
Meirihluta herbergja var lokað í morgun þar sem rekstraraðili hefur aðeins leyfi til að leigja út níu herbergi.
Óhætt að drekka kranavatnið á Hótel Adam samkvæmt matvælaeftirlitinu
Bráðabirgðaniðurstöður benda einnig til að vatnið sem hótelið selur á flösku sé óhætt til neyslu.
Lögreglan mun loka Hótel Adam á morgun
Gert að kröfu Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Hótel Adam greiði starfsmanni 2,3 milljónir vegna vangoldinna launa
Fyrrverandi starfsmaður Hótel Adam fær 2,3 milljónir vegna vangoldinna launa. Hún segir lögreglu hafa rannsakað mál sitt sem mansalsmál.
Gestir í miðjum kaffisopa á Hótel Adam þegar lögreglan mætti til að loka
Nokkrir sem sátu og drukku kaffi var bent á að verið væri að loka.