Emil yfirgaf Hauka eftir 21 ár: Þurfti að prófa eitthvað nýtt svo ég sæi ekki eftir því Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. júlí 2018 11:00
Emil Barja hefur spilað allan sinn körfuboltaferil með Haukum í Hafnarfirði en hann skrifaði í gær undir samning við fimmfalda Íslandsmeistara KR. Hvað kom til að Emil, sem hefur verið fyrirliði Hauka síðustu ár, ákvað að breyta til? „Bara að prófa eitthvað nýtt. Ég er búinn að vera hjá Haukum síðan ég var sex ára og ég held það sé bara kominn tími á að prófa eitthvað annað á meðan maður hefur líkamann í það,“ sagði Emil á blaðamannafundi KR í gær þar sem hann var kynntur til leiks. „Það var mjög erfitt, alveg hrikalega erfitt [að ákveða að yfirgefa Hauka]. Haukar eru toppfélag og ennþá mitt félag, uppeldisfélag. Það var erfitt en þurfti að koma að því einhvern tímann svo maður sjái ekki eftir því eftir ferilinn að hafa ekki prófað eitthvað annað.“ Emil skrifaði undir tveggja ára samning við KR. Á fundinum skrifaði Björn Kristjánsson líka undir framlengingu á samningi sínum við KR. KR vann sinn fimmta Íslandsmeistaratitil í röð í vor en nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum í sumar og nýr þjálfari tekinn við. „Þetta eru Íslandsmeistararnir og þó þeir hafi misst leikmenn þá eru þeir ennþá með góðan hóp. Ég fékk að vita það fyrir tveimur vikum síðan að ég var hérna þegar ég var tveggja ára, í íþróttaskóla KR, þannig að maður er kannski bara að koma aftur til baka,“ sagði Emil Barja.
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira