Google viðurkennir að utanaðkomandi geti lesið Gmail-pósta Kjartan Kjartansson skrifar 3. júlí 2018 15:19 Gmail er vinsælasta tölvupóstþjónusta heims. Vísir/Getty
Þróendur snjallforrita geta í sumum tilfellum lesið tölvupósta sem notendur Gmail senda og fá. Google hefur staðfest þetta og segir að sumir notendur gætu hafa veitt forritunum aðgang að póstunum óafvitandi. Gmail er vinsælasta tölvupóstþjónusta heims með um 1,4 milljarða notenda, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Google segir að það stangist ekki á við stefnu sína að forrit biðji um aðgang að póstum notenda sinna. Google býður notendum upp á mögulekann að tengja Gmail-aðgang sinn við viðbótarforrit annarra hugbúnaðarþróenda. Notendur samþykkja þá notendaskilmála. Í sumum tilfellum leyfi þeir forritunum að sækja tölvupósta notenda. Alan Woodward, prófessor við Háskólann í Surrey á Englandi, segir við BBC að vel geti verið að kveðið sé á um aðgang að tölvupóstum í notendaskilmálum forritanna. Það sé hins vegar ekki eðlilegt að starfsmenn hugbúnaðarfyrirtækja geti lesið tölvupósta fólks. „Maður getur eytt vikum af lífi sínu í að lesa skilmála og skilyrði,“ segir hann.
Google Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira