Kalla inn Subaru-bifreiðar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. júní 2018 09:07 Ástæða þess að bílarnir eru kallaðir inn er að spennufall getur myndast í tengi fyrir bensíndælu sem orsakar sambandsleysi. Möguleiki er á að sé bíll lengi í gangi þá drepi hann á sér.
BL ehf. hefur kallað inn 2112 Subaru-bifreiðar að því er fram kemur á vef Neytendastofu. Barst Neytendastofu tilkynning frá BL um innköllunina en um er að ræða Legacy og Outback af árgerðum 2004 og 2009 og Impreza af árgerðum 2008 til 2010. Ástæða þess að bílarnir eru kallaðir inn er að spennufall getur myndast í tengi fyrir bensíndælu sem orsakar sambandsleysi. Möguleiki er á að sé bíll lengi í gangi þá drepi hann á sér. „Viðgerð felur í sér að skipt verður um rafkerfi bensíndælu. Mögulega þarf að skipta um tengi inn á bensíndælu eða efri hluta dælunnar. Aðgerðin er eigendum að kostnaðarlausu og tekur um eina eða tvær klukkustundir. Bréf verða send til bíleigenda á næstu dögum. Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL ehf. ef þeir eru í vafa,“ segir á vef Neytendastofu.
Neytendur Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent