FH-ingar fengu sín fyrstu stig í kvöld eftir 2-1 sigur gegn KR í þriðju umferð Pepsi-deildar kvenna. Eftir töp í fyrstu tvem leikjunum gegn ÍBV og HK/Víking kom FH sterkt til baka í kvöld og vann góðan sigur.
Fyrsta færi leiksins kom eftir rúmlega hálfa mínutu þegar Margrét María Hólmarsdóttir skaut í slánna. FH-ingar voru samt ekki lengi að skapa sín eigin færi en Marjani Hing-Glover tók sitt fyrsta skot í leiknum eftir tæpar 10 mínutur en það fór líka í tréverkið.
Næstu 30 mínutur einkenndust af jöfnum leik þar sem hvorugt liðið náði að skapa sér almennileg færi. Á 40. mínútu fékk Katrín Ómarsdóttir verk í lærið í miðri sendingu og missir boltann, Jasmín Erla Ingadóttir náði boltanum þegar Katrín missir hann og gefur á Marjani sem kom Hafnfirðingum 1-0 yfir.
Katrín fór meidd útaf stuttu eftir markið og kom ekki aftur inná. Staðan 1-0 í hálfleik og FH búnar að vera aðeins betri.
KR-ingar komu ákveðnar út úr hálfleiknum og náðu nokkrum færum á fyrsta korteri síðari hálfleiks. Á 59. mínútu náði Tijana Krstic að brjóta ísinn með svakalegu skoti fyrir utan teig, staðan 1-1 og allt í járnum.
Eftir mark KR fóru FH-ingar að spila boltanum betur og voru þær ekki lengur að koma sér yfir aftur en KR skoraði sjálfsmark á 66. mínútu eftir fyrirgjöf frá Jasmín Erlu.
FH hélt áfram að sækja að krafti út leikinn og hefðu nokkrum sinnum geta aukið forystuna en fundu ekki netið oftar í þessum leik. FH-ingar sáttir með fyrstu stigin en KR svekktar með fyrsta tapið.
Af hverju vann FH?
FH spiluðu boltanum betur sín á milli og náðu að skapa sér fleiri hættuleg færi, svo hjálpaði það líka FH-ingum að KR gera stór mistök í báðum mörkunum.
Hverjir stóðu upp úr?
Jasmín Erla og Selma Dögg stýrðu spilinu vel á miðjunni hjá FH og var Jasmín með stoðsetningu í báðum mörkum mætti segja. Arna Dís varðist vel í vinstri bakverðinum á meðan Marjani var ávallt hættuleg fyrir framan markið hjá KR.
Hvað gekk illa?
KR-ingar áttu erfitt með að nýta þau færi sem þær fengu.
Hvað gerist næst?
KR-ingar fara til Eyja á laugardaginn á meðan FH-ingar fara á Selfoss næsta miðvikudag.

