KR-liðið búið að vinna 24 leiki í röð í átta liða úrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2018 16:00 Kristófer Acox. vísir/eyþór
KR-ingar unnu í gærkvöldi sannfærandi 25 stiga sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni, 91-66, og eru þar með komnir í 2-0 í einvígi liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta. KR-ingar hafa unnið tvo fyrstu leikina með samtals 40 stigum því þeir unnu leik eitt 89-74. KR getur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri í næsta leik sem fer fram á þeirra heimavelli í Vesturbænum. Jón Arnór Stefánsson hefur farið fyrir KR-liðinu í þessum tveimur leikjum en hann er með 35 stig á 47 mínútum og 62 prósent þriggja stiga skonýtingu í þessum tveimur sigrum. Kristófer Acox er síðan með 20 stig og 12 fráköst að meðaltali í leik og Pavel Ermolinskij er að bjóða upp á meðaltölin 7,5 stig, 8,5 fráköst og 11,5 stoðsendingar. Það eru reyndar flestir að skila því Kendall Pollard (13,5 stig í leik), Darri Hilmarsson (13,0) og Björn Kristjánsson (11,5) sjá til þess að alls fimm leikmenn KR-liðsins eru að skora yfir ellefu stig að meðaltali í úrslitakeppninni til þessa. KR-ingar hafa með þessum tveimur sigurleikjum haldið áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í átta liða úrslitunum. KR-liðið hefur nefnilega unnið alla 24 leiki sína í fyrstu umferð úrslitakeppninnar frá vorinu 2008. KR tapaði í oddaleik á móti ÍR í átta liða úrslitunum 29. mars 2008 en hefur unnið alla leiki sína í þessum hluta úrslitakeppninnar síðan þá. Nú eru liðnir 3643 dagar síðan að KR tapaði leik í átta liða úrslitunum eða níu ár, ellefu mánuðir og 20 dagar.KR í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar 2009-2018:2009 KR 2-0 Breiðablik {123-75, 102-75}2010 KR 2-0 ÍR {98-81, 103-81}2011 KR 2-0 Njarðvík {92-80, 96-80}2012 KR 2-0 Tindastóll {84-68, 89-81}2013 Þór Þorl. 0-2 KR {83-121, 83-93}2014 KR 3-0 Snæfell {98-76, 99-85, 101-84}2015 KR 3-0 Grindavík {71-65, 81-77, 94-80}2016 KR 3-0 Grindavík {85-67, 91-77, 83-62}2017 KR 3-0 Þór Ak. {99-68, 81-64, 90-80}2018: KR 2-0 Þór Ak. {89-74, 91-66, ...}
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira