Kári: Breki kom með það sem vantaði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. mars 2018 21:23 Kári Jónsson stóð í ströngu gegn Herði Axel Vilhjálmssyni í kvöld. Vísir/Bára
Kári Jónsson var hæstánægður eftir að hans menn í Haukum höfðu tryggt sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Domino's-deildar karla eftir nauman sigur á Keflavík í oddaleik í kvöld. Meira en tvö þúsund manns voru á Ásvöllum í kvöld sem er met þar á bæ í körfuboltaleik. „Við vorum mest tólf stigum undir í leiknum en þá kviknaði eitthvað í okkur. Við náðum að bæta okkur hægt og rólega og koma okkur aftur inn í leikinn,“ sagði Kári við Vísi eftir leikinn í kvöld. „Kannski áttuðum við okkur á því að við myndum fara í sumarfrí en mér fannst við bregðast mjög vel við og það sýnir styrk okkar að hafa komið til baka,“ sagði Kári sem var í mikilli baráttu við Hörð Axel Vilhjálmsson í kvöld eins og í öðrum leikjum í þessari seríu. „Hann er einn af bestu bakvörðum sem Ísland hefur átt. Hann er frábær leikmaður, bæði í vörn og sókn, og það var virkilega gaman að glíma við hann. Sem betur fer þá kannski þurfti að eyða of mikilli orku í alla þá vinnu sem hann leggur í þetta á báðum endum vallarins. Við reyndum samt hvað sem við gátum til að stöðva hann.“ Breki Gylfason kom inn af miklum krafti í lið Hauka eftir að varamenn liðsins höfðu ekki lagt mikið af mörkum. Hann skoraði afar dýrmæt stig í fjórða leikhluta þegar Haukar voru að brúa bilið. „Breki gerði það sem hefur vantað í síðustu tveimur leikjum - að vera óhræddur. Gera bara hlutina og ekki hugsa sig tvisvar um. Hann var frábær í kvöld.“
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira