Lögðu hald á skammbyssu, skotfæri og skothelt vesti Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. febrúar 2018 09:08 Þremenningarnir hafa allir komið við sögu lögreglu. Vísir/Vilhelm
Tveir karlar og ein kona voru handtekin í húsi í Kópavogi á fimmta tímanum í nótt eftir að lögreglu bárust áreiðanlegar upplýsingar um að inni væri væri maður vopnaður skammbyssu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Talsverður viðbúnaður var á svæðinu vegna málsins og var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Við húsleit var lagt hald á skammbyssu, skotfæri og skothelt vesti. Þremenningarnir sem handteknir voru eru á þrítugs- og fertugsaldri og hafa öll komið áður við sögu lögreglu.Uppfært klukkan 10:31: Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglu, segir í samtali við Vísi að fólkið hafi enn ekki verið yfirheyrt en það var í mjög annarlegu ástandi þegar lögreglu bar að garði. Þá staðfestir Gunnar að um sé að ræða góðkunningja lögreglu. Tilkynning um byssumanninn barst lögreglu um klukkan 23 í gærkvöldi og voru þremenningarnir handteknir á fimmta tímanum í morgun. Búist er við því að fólkið verði yfirheyrt í dag. Þá liggur ekki fyrir hvers vegna téð skotvopn og skothelt vesti voru inni á heimilinu.
Lögreglumál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira