Guðni þakkaði Svíakonungi fyrir lánið á Lars Lagerbäck Atli Ísleifsson skrifar 17. janúar 2018 12:45 Forsetahjónin mættu til sænsku konungshallarinnar um hádegisbil. Vísir/Atli Ísleifsson
Þriggja daga opinber heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar forseta og Elizu Reid forsetafrúar til Svíþjóðar hófst í dag þegar sænsku konungshjónin tóku á móti forsetahjónunum í Stokkhólmi. Heimsóknin hófst á því að Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning tóku á móti forsetahjónunum í konunglega hesthúsinu og var hjónunum svo ekið í hestvagni í móttöku í garði konungshallarinnar þar sem fulltrúar sænsku ríkisstjórnarinnar og þingsins voru í hópi viðstaddra. Deginum mun ljúka á hátíðarkvöldverði til heiðurs forsetahjónunum þar sem fjölmargir Íslendingar og Svíar úr hinum ýmsu geirum þjóðlífsins verða meðal gesta. Upptöku frá blaðamannafundi Guðna og Karls Gústafs Svíakonungs má sjá hér að neðan. Ræðir við þingforseta og forsætisráðherra Karl Gústaf og Guðni ræddu við við fréttamenn í Konungshöllinni áður en konungshjónin og forsetahjónin fengu sér hádegisverð saman. Konungurinn minntist á hvað samstarf ríkjanna, bæði á sviði stjórnmála, efnahagsmála og menningarmála. Hann sagðist hlakka til dagskrárinnar næstu daga og að þjóðirnar gætu lært margt hvor af annarri. Guðni og Karl Gústaf í sænsku konungshöllinni.Vísir/Atli Guðni flutti sína ræðu á sænsku og minntist á hvað vel sé tekið á móti Íslendingum í Svíþjóð. Þúsundir Íslendinga hafi stundað nám eða starfað í Svíþjóð þar sem sumir hafi sest að til frambúðar á meðan aðrir hafi snúið aftur með góðar minningar í farteskinu. Þá minntist hann á íslenska íþróttaþjálfara sem hafi gert það gott í Svíþjóð, meðal annars Elísabetu Gunnarsdóttir, þjálfara Kristiansstad, og Kristján Andrésson, þjálfara sænska handboltalandsliðsins. Þá ræddi Guðni einnig um Svíann Lars Lagerbäck og hve vel honum hafi tekist til sem þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu. Væru margir sem héldu því fram að þökk sé honum hafi tekist að finna réttu blönduna af sænskri kerfishugsun og íslenskri einstaklingshyggju. Utanríkisráðherrarnir funda Á sama tíma og konungshjónin og forsetahjónin fá sér hádegisverð býður Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra sem og fleirum úr íslensku sendinefndinni í hádegisverð í húsakynnum sænska utanríkisráðuneytisins. Upphaflega stóð til að Viktoría krónprinsessa og Daníel prins myndi vera viðstödd hádegisverð konungshjónanna og forsetahjónanna en vegna veikinda hafa þau neyðst til að afboða sig í hádegisverðinn og hátíðarkvöldverðinn sem skipulagður er í kvöld. Er það meðal annars gert af virðingu við þá íþróttamenn sem þar verða viðstaddir. Að hádegisverði loknum mun Guðni eiga fundi bæði með Urban Ahlin, forseta sænska þingsins, og síðar Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar. Íslenski fáninn er áberandi í miðbæ Stokkhólms í tilefni heimsóknarinnar.Vísir/Atli Ísleifsson Ræða þýðingarElísa og Silvía drottning munu heimsækja bókasafn Konungshallarinnar áður en leiðin liggur til Borgarbókasafns Stokkhólms þar sem þær taka þátt í málstofu um bókmenntir, þýðingar og mikilvægi þýðandans. Eliza mun þar flytja opnunarerindi, titlað Bækur byggja brýr. HátíðarkvöldverðurHátíðarkvöldverðurinn verður svo í Konungshöllinni og hefst klukkan 20 að sænskum tíma, eða 19 að íslenskum tíma. Dagskrá heimsóknar Guðna og Elizu er þétt þar sem áhersla verður meðal annars lögð á sameiginlega sögu ríkjanna, gildi og menningu, sjálfbærni og samstarf á sviði rannsókna. Á morgun verða forsetahjónin áfram í Stokkhólmi, en á þriðja og síðasta degi heimsóknarinnar verður haldið til Uppsala. Sendinefnd ÍslandsOpinber sendinefnd Íslands í ferðinni er þannig skipuð: Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Jean Reid forsetafrú Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ágústa Johnson, eiginkona utanríkisráðherra Örnólfur Thorsson forsetaritari Estrid Brekkan, sendiherra Íslands í Svíþjóð Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri á skrifstofu forseta Íslands Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Unnur Anna Valdimarsdóttir, professor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Ragna Þórhallsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu forseta Íslands Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu
Forseti Íslands Norðurlönd Guðni Th. Jóhannesson Landslið karla í fótbolta Svíþjóð Karl Gústaf XVI Svíakonungur Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira