Bandaríkin reiðubúin að ræða kjarnorkuafvopnun við Norður-Kóreu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. desember 2017 23:30 Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Bandaríkin eru reiðubúin að ræða kjarnorkuafvopnun við Norður-Kóreu án nokkurra fyrirvara. Þetta sagði Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag. „Við skulum bara hittast og tala um veðrið ef þið viljið,“ sagði hann á umræðufundi hugveitunnar Atlantic Council í Washington DC í dag. Svo virðist sem Bandaríkin séu að mildast í stefnu sinni varðandi Norður-Kóreu. Utanríkisráðuneytið hefur áður sagt að Norður-Kóreumenn verði að sýna það í verki að þeir séu reiðubúnir að hætta kjarnorkutilraunum sínum, áður en hægt er að hefja viðræður. Það hafa þeir sannarlega ekki gert, heldur þvert á móti hert á vopnaþróun sinni síðustu mánuði. Þá sagði fulltrúi Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna að norður-kóresku þjóðinni yrði tortímt kæmi til stríðs á fundi öryggisráðsins þann 29. nóvember síðastliðinn. Tillerson sagði þó að refsiaðgerðir gagnvart Norður-Kóreu verði enn í gildi þar til „fyrsta sprengjan lendir.“ Hann sagði Bandaríkin jafnframt ekki geta sætt sig við að Norður-Kórea ætti kjarnorkuvopn. „Við skulum bara hittast og tala um veðrið ef þið viljið og tala um hvort borðið verður ferkantað eða hringlótt ef það er það sem fólk vill,“ sagði Tillerson. „Svo getum við farið að útbúa kort, áætlun, um hvaða markmiðum við viljum vinna að.“ Tillerson sagði einnig að yfirvöld í Kína væru reiðubúin að taka við flóttamönnum ef þjóðirnar fara í stríð.
Norður-Kórea Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira