Handbolti

Guðjón Valur fór hamförum er Ljónin tættu Refina í sig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur var óstöðvandi í kvöld.
Guðjón Valur var óstöðvandi í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen hrifsaði toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni af Füchse Berlin í kvöld er liðið vann yfirburðasigur, 37-23, í toppslag liðanna.

Guðjón Valur Sigurðsson var yfirburðamaður á vellinum en hann skoraði tíu mörk fyrir Löwen í kvöld. Alexander Petersson skoraði tvö.

Bjarki Már Elísson skoraði aðeins eitt mark fyrir Berlin í kvöld.

Lið Alfreðs Gíslasonar, Kiel, vann svo fínan sigur á Minden, 30-27. Svíarnir Niclas Ekberg og Lukas Nilsson báðir með fimm mörk fyrir Kiel í kvöld sem komst upp í fimmta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×