Handbolti

Arnór með þrjú mörk í sigri á Kolding

Dagur Lárusson skrifar
Arnór í leik með Íslandi
Arnór í leik með Íslandi vísir/EPA
Arnór Atlason og Janus Daði Smárason voru báðir í eldlínunni þegar Álaborg tók á móti Ólafi Gústafssyni og félögum í Kolding í danska hanboltanum í dag.

Fyrir leikinn var Álaborg í 5.sæti deildarinnar með 16 stig á meðan Kolding var í 8.sæti með 15 stig.

Það voru heimamenn í Aalborg sem voru sterkari aðilinn í leiknum og fóru þeir með hvorki meira né minna en sjö marka forystu inn í leikhlé.

Aalborg unnu að lokum tíu marka sigur 30-20 og eftir leikinn er Aalborg komið í 6.sæti með 16 stig.

Arnór Atlason skoraði 3 mörk fyrir Aalborg og Janus Daði skoraði 2 en Ólafur skoraði ekkert mark í liði Kolding.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×