Gylfi Þór og Sara Björk knattspyrnufólk ársins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2017 10:52 Gylfi Þór og Sara Björk. Vísir/Eyþór/Vilhelm
Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir eru knattspyrnufólk ársins að KSÍ en þetta var tilkynnt á heimasíðu sambandsins í dag. Segir í fréttinni að fjölmargir aðilar komi að valinu, til að mynda fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn úr knattspyrnuhreyfingunni. Sara Björk var í lykilhlutverki með Wolfsburg, sem varð tvöfaldur meistari í Þýskalandi á árinu sem og íslenska ladnsliðinu þar sem hún var fyrirliði á EM í Hollandi í sumar. Íslenska landsliðið vann svo frækinn sigur á Þýskalandi í undankeppni HM 2019 í haust. Sif Atladóttir lenti í öðru sæti í valinu og Dagný Brynjarsdóttir þriðja. Sif leikur með Kristianstad í Svíþjóð en Dagný varð bandarískur meistari með Portland Thorns. Gylfi Þór átti frábært tímabil með Swansea á síðustu leiktíð, sérstaklega eftir áramót þar sem hann var í lykilhlutverki þegar liðið bjargaði sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Hann var svo seldur til Everton í sumar fyrir metfé. Aron Einar Gunnarsson er á mála hjá Cardiff í ensku B-deildinni og varð annar í valinu. Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Burnley í ensku úrvalsdeildinni, varð þriðji. Allir þrír eru lykilmenn í íslenska landsliðinu sem vann sinn riðil í undankeppni HM 2018 og tryggði sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í fyrsta sinn.
Íslenski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Sjá meira