Fótbolti

Úrslitaleikur Nígeríu og Argentínu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Þjóðverjinn Rohr tók við liði Nígeríu árið 2016
Þjóðverjinn Rohr tók við liði Nígeríu árið 2016 Vísir/Getty
Landsliðsþjálfari Nígeríu, Germot Rohr, sagði D-riðil Íslands, Nígeríu, Argentínu og Króatíu vera fullan af góðum liðum.

„Þeir eru líka með gott lið. Eru mjög sterkir líkamlega og áttu bestu stuðningsmennina á Evrópumótinu,“ var það sem Rohr hafði að segja um Ísland.

Hann sagði að síðasti leikur Nígeríu, gegn Argentínu, muni verða úrslitaleikur um sæti í 16-liða úrslitum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×