Steely Dan stríð í uppsiglingu Birgir Olgeirsson skrifar 26. nóvember 2017 18:03 Walter Becker og Donald Fagen árið 1977. Vísir/Getty
Aðdáendur bandarísku sveitarinnar syrgja margir hverjir enn einn af stofnendum sveitarinnar, Walter Becker, sem féll frá í haust. Sá sem stofnaði sveitina með Becker er Donald Fagen en þeir sem höfðu vonast til að sjá sveitina á sviði með Fagen á næstunni gætu þurft að bíða í einhvern tíma, því fyrir hendi er barátta fyrir dómstólum um stjórn á hljómsveitinni.Tónlistartímaritið Rolling Stone greinir frá þessu en þar kemur fram að Fagen hafi höfða mál á hendur dánarbú Beckers með það að markmiði að fá fulla stjórn á hljómsveitinni. Áður en Steely Dan sendi frá sér sína fyrstu plötu, Can´t Buy a Thrill, árið 1972 skrifuðu þeir Fagen og Becker undir samkomulag þess efnis að ef einhver ef meðlimum bandsins myndi hætta eða deyja, þá myndi fyrirtækið sem heldur utan um rekstur sveitarinnar kaupa alla hluti viðkomandi í fyrirtækinu.Walter Becker og Donald Fagen á sviði árið 2003.Vísir/GettyÍ stefnu Fagens er því haldið fram að fjórum dögum fyrir fráfall Beckers þriðja september síðastliðinn hafi Fagen borist bréf frá búi hans þar sem kveðið var á um að þetta samkomulag sem þeir rituðu undir árið 1972 væri ekki lengur í gildi. Í bréfinu var farið fram á að ekkja Beckers, Delia Becker, yrði skipuð stjórnandi Steely Dan og myndi eignast 50 prósent í fyrirtækinu sem sér um rekstur sveitarinnar. Málshöfðun Fagens gengur út á að fá fulla stjórn á hljómsveitinni og að samkomulagið verði virt með því að fyrirtækið kaupi alla hluti Beckers. Fagen hefur einnig stefnt umboðsskrifstofunni Nigro, Karlin, Segal & Bolno. Fyrirtækið hefur einnig séð um bókhald sveitarinnar en Fagen heldur því fram að fyrirtækið hafi leynt upplýsingum fyrir honum, þar á meðal upplýsingum um stefgjöld og tekjur af tónleikaferðalögum, ásamt „annarri pukurslegri hegðun“.
Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira