Auðmenn sagðir skoða leiðir til að komast undan greiðslu auðlegðarskatts Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. nóvember 2017 11:32 Eina löglega leiðin til þess að komast undan því að greiða auðlegðarskatt hér á landi er að flytja af landi brott og þarf flutningurinn að vera raunverulegur en ekki aðeins á pappírunum. Vísir/Valli
Fólk sem á miklar eignir hér á landi er nú sagt skoða leiðir til þess að komast undan greiðslu auðlegðarskatts en Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, talaði um það í kosningabaráttunni í liðnum mánuði að koma á því sem kallaður hefur verið „hóflegur auðlindaskattur“ upp á 1,5 prósent.Viðskiptablaðið kveðst hafa heimildir fyrir hugmyndum auðmanna um að flytja eignir sínar úr landi í blaðinu í dag. Segir þar að fólk hafi fundað með ráðgjöfum meðal annars í aðdraganda kosninganna og hleypur fjöldi þeirra sem sótt hafa sér ráðgjöf vegna þess á tugum manna samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Spurningin er þó hvort að auðlegarskatti verði yfir höfuð komið á en eins og greint hefur verið frá er nú til skoðunar í óformlegum þreifingum flokkanna varðandi stjórnarmyndun að Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn vinni saman í ríkisstjórn. Alkunna er að Sjálfstæðismenn hafna öllum hugmyndum um auðlegarskatt. Að því sögðu er eina löglega leiðin til þess að komast undan því að greiða auðlegðarskatt hér á landi er að flytja af landi brott og þarf flutningurinn að vera raunverulegur en ekki aðeins á pappírunum, eins og það er orðað í Viðskiptablaðinu. Þannig þarf viðkomandi að flytja lögheimili sitt, skattalega heimilisfesti og hugsanlega allar eignir úr landi til að komast hjá greiðslu skattsins en slíkt gæti reynst snúið fyrir einhverja, ekki síst þá sem eiga miklar eignir en eru einnig í rekstri hér á landi. Þeir aðilar gætu þannig ekki eins auðveldlega og ef til aðrir auðmenn farið alveg af landi brott með allt sitt.Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira