Rjúpnaskyttur fá tólf daga Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2017 14:38 Leyfileg heildarveiði á rjúpum er um 57.000 rjúpur og miðað við fjölda veiðimanna síðasta ár, gera það 5-6 fugla á hvern veiðimann. Sölubann á er rjúpum. visir/vilhelm
Umhverfis og auðlindaráðuneytið minnir á að rjúpnaveiðitímabilið hefst föstudaginn 27. október og munu veiðidagar rjúpu í ár verða tólf talsins, sem skiptast á fjórar helgar á tímabilinu 27. október til 19. nóvember 2017. Er fyrirkomulagið það sama og undanfarin ár. Leyfileg heildarveiði á rjúpum er um 57.000 rjúpur og miðað við fjölda veiðimanna síðasta ár, gera það 5-6 fugla á hvern veiðimann. Sölubann á er rjúpum. Stjórnvöld hafa það sem meginstefnu að nýting rjúpnastofnsins skuli vera sjálfbær. Jafnframt skuli rjúpnaveiðimenn stunda hóflega veiði til eigin nota. Til að vinna að því er stofninn vaktaður og rannsakaður og er rekið stjórnkerfi til að stýra veiðinni að sjálfbærri nýtingu hans. Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2017 er eftirfarandi: Leyfileg heildarveiði árið 2017 er um 57.000 rjúpur sbr. mat Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli stofnsins. Mat stofnunarinnar á veiðiþolinu er meðfylgjandi. Sölubann er á rjúpum og fylgir Umhverfisstofnun því eftir. Hófsemi skal vera í fyrirrúmi: Veiðimenn eru eindregið hvattir til að sýna hófsemi og miða veiðar við 5-6 fugla pr. veiðimann. Jafnframt eru veiðimenn sérstaklega beðnir um að gera hvað þeir geta til að særa ekki fugl umfram það sem þeir veiða m.a. með því að ljúka veiðum áður en rökkvar. Veiðiverndarsvæði er á SV-landi, líkt og undanfarin ár. Fjöldi veiðidaga eru 12 sem skiptast á fjórar helgar, þ.e. síðustu helgina í október og fyrstu þrjár í nóvember: Föstudaginn 27. október til sunnudags 29. október. 3 dagar. Föstudaginn 3. nóvember til sunnudags 5. nóvember. 3 dagar. Föstudaginn 10. nóvember til sunnudags 12. nóvember. 3 dagar. Föstudaginn 17. nóvember til sunnudags 19. nóvember. 3 dagar. Veiðimenn eru hvattir til góðrar umgengi um landið. Nánari upplýsingar til veiðimanna eru á vef Umhverfisstofnunar.
Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Lögreglan leitar að Heklu Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Sjá meira