Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Agnar Már Másson skrifar 19. september 2026 14:11 Allir dómarar í Héraðsdómi Reykjavíkur eru sjóðfélagar í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Vísir/Vilhelm Allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur eru taldir vanhæfir til að dæma í máli um skerðingu lífeyrisréttinda ríkisstarfsmanna þar sem þeir eru sjálfir sjóðfélagar í sama lífeyrissjóði. Þeir gætu haft verulega fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðunni.
Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þess efnis í vikunni. Ljósmóðir, sem er sjóðfélagi í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), höfðaði mál gegn íslenska ríkinu í fyrra og krafðist bóta vegna þess sem hún taldi vera ólögmæta skerðingu á lífeyrisréttindum sínum. Taldi hún breytingar sem gerðar voru á lífeyriskerfi ríkisstarfsmanna árið 2016, sem gerðu sjóðnum kleift að skerða lífeyrisréttindi félaga vegna hækkandi lífaldurs, brjóta gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti og jafnræðisreglu. Í ljós hefur nú komið að allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur eru sjóðfélagar í A-deild LSR og því getur niðurstaða í málinu haft áhrif á þeirra eigin lífeyrisréttindi. Dómari grunaði sig vera vanhæfan Í nóvember 2025 vakti dómari í málinu athygli lögmanna á því að þar sem hann væri sjálfur sjóðfélagi í A-deild sjóðsins væri hann hugsanlega vanhæfur. Hann vék því sæti og Landsréttur staðfesti þá ákvörðun í janúar 2026. Ákvörðun Landsréttar var síðan kærð til Hæstaréttar, sem felldi úrskurðinn úr gildi og vísaði málinu aftur til Landsréttar. Landsréttur staðfesti þá aftur að dómarinn væri vanhæfur. Sá úrskurður var aftur kærður en Hæstiréttur hafnaði að taka málið fyrir á ný. Allir reyndust vanhæfir Þá þurfti að finna nýjan dómara en þá reyndi á það hvort aðrir dómarar við héraðsdóminn kynnu einnig að vera vanhæfir vegna persónulegra hagsmuna, rétt eins og sá sem sagði sig frá málinu. Undir meðförum málsins fyrir Landsrétti var kallað eftir upplýsingum um lífeyrisgreiðslur dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, en samkvæmt þeim voru allir dómarar við réttinn sjóðfélagar í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Þannig fékkst það staðfest að allir dómarar við réttinn væru vanhæfir til að dæma í málinu enda taldi Landsréttur að fjárhagslegir hagsmunir dómara af málinu væru bæði umtalsverðir og sérstakir.
Dómstólar Lífeyrissjóðir Dómsmál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira