Þetta eru þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson. Það munar nákvæmlega á þeim 19 árum, 11 mánuðum og 22 dögum.
Unga og gamla kynslóðin að gíra sig upp fyrir - á fimmtudag kl.19.30. Miðasala hér https://t.co/sodHcrtOjL#strakarnirokkar#handboltipic.twitter.com/kArQJPLOVm
— HSÍ (@HSI_Iceland) October 24, 2017
FH-ingurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson er fæddur 30. júlí 1999 og varð því átján ára gamall í sumar.
Guðjón Valur lék sinn fyrsta A-landsleik á móti Ítalíu 15. desember 1999 en þá var Gísli aðeins fjögurra mánaða og fimmtán daga.
Guðjón Valur er núna kominn með 1781 mark í 339 landsleikjum. Gísli mun spila sína fyrstu A-landsleiki á móti Svíum í Laugardalshöll á fimmtudag og laugardag.
Guðjón Valur hefur verið í að verða átján ár í íslenska landsliðinu en hann náði þó ekki að leika með Kristjáni Arasyni föður Gísla. Kristján Arason spilaði á sínum tíma 238 landsleiki og skoraði í þeim 1089 mörk.
Kristján Arason er ásamt Guðjóni Val og Ólafi Stefánssyni meðlimur í þúsund marka klúbbi íslenska A-landsliðsins í handbolta.
Leikirnir við Svía fara fram i Laugardalshöllinni. Sá fyrri fimmtudaginn 26. október klukkan 19.30 og sá síðari laugardaginn 28. október klukkan 14.00.