Öruggt að nýliðar vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu á Stöð 2 Sport í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2017 15:30 Þrennuvélin Aaron Moss er mættur aftur. Vísir/Eyþór
Þriðja umferð Domino´s deildar karla í körfubolta fer af stað í kvöld en þá verða fjórir leikir á dagskrá. Nýliðaslagur Hattar og Vals verður í beinni á Stöð 2 Sport en ljóst er að annað þessara liða vinnur sinn fyrsta leik á tímabilinu á Egilsstöðum í kvöld. Höttur hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á móti Stjörnunni og ÍR en geta huggað sig við það að bæði þau lið eru með fullt hús á toppnum. Valsmenn hafa aftur á móti tapað á móti Keflavík og Tindastól sem töpuðu bæði hinum leik sínum í deildinni. Höttur vann 1. deildina í fyrra en Valsmenn komust upp í gegnum úrslitakeppnina. Bæði lið eru lítið breytt ekki síst eftir að Hattarmenn fengu aftur til sín Bandaríkjamanninn Aaron Moss sem var með 23,5 stig, 12,3 fráköst og 8,9 stoðsendingar að meðaltali í 1. deildinni í fyrra. Valsmenn tefla líka fram sama Bandaríkjamanni og í fyrra. Þrátt fyrir efsta sætið hafa Hattarmenn ástæðu til að hefna á móti Valsliðinu á Egilsstöðum í kvöld. Höttur vann 21 af 24 leikjum sínum í 1. deildinni á síðasta tímabili eða alla leiki sína nema þessa þrjá sem liðið spilaði á móti Val. Valsliðið vann allar þrjár innbyrðisviðureignir liðanna, fyrst 86-77 á Hlíðarenda í nóvember 2016, þá 76-68 á Egilsstöðum í febrúar 2017 og loks 118-84 á Hlíðarenda í mars. Leikurinn hefst klukkan 19.15, útsendingin fer í loftið 19.05 og Tómas Þór Þórðarson mun lýsa leiknum úr Brauð og co. Höllinni á Egilsstöðum.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira