
Málalok
Í samráði við endurskoðanda ákvað Anna að fara varfærnustu leið sem völ var á, í merkingunni að greiða fullan skatt á Íslandi og notast ekki við heimildir laga til að draga úr skattlagningu. Eignirnar og tekjur af þeim voru fram taldar sem eignir og tekjur Önnu.
Þrátt fyrir hina miklu, oft á tíðum kolröngu og ruglingslegu umræðu um málið, og þrátt fyrir kaup ríkisstjórnar minnar á upplýsingum um erlend félög í eigu Íslendinga, bárust okkur hjónum engar fyrirspurnir eða önnur erindi frá skattayfirvöldum í framhaldinu. Þeim var enda ljóst að eignirnar hefðu verið gefnar upp allt frá því Anna seldi hlut sinn í fjölskyldufyrirtækinu. Því hafði auk þess fylgt nafn félagsins, skráningarland og kaupverð.
Í ljósi umræðunnar ákváðum við þó, að eigin frumkvæði, að senda ríkisskattstjóra erindi þar sem mun ítarlegri grein var gerð fyrir umræddum eignum og tekjum af þeim en skattframtalsform gera ráð fyrir og gefa kost á. Ríkisskattstjóra var boðið að endurmeta þá aðferð sem lögð var til grundvallar skattlagningu.
Ríkisskattstjóri varð við erindinu og við tók margra mánaða ferli þar sem við leituðumst við að veita sem ítarlegust svör við öllum fyrirspurnum. Um áramót barst niðurstaða þar sem ríkisskattstjóri fór nýja leið við útreikning skattstofna (auk þess sem leiðrétt var fyrir síðbúinni innheimtu skuldar við félagið sem talin hafði verið töpuð og hafði ekki skilað sér til hins skilvísa skattgreiðanda Wintris). Þetta fól í sér nokkra hækkun skattstofns. Það sem skipti þó meira máli var að ljóst þótti að ekki hefði verið gerð tilraun til skattaundanskots. Fyrir vikið þurfti ekki að greiða álag af viðbótarupphæðinni.
Endurskoðendur okkar töldu hina nýju aðferð ríkisskattstjóra ekki ganga upp. Engu að síður var ákveðið að greiða skattinn til fulls en með fyrirvara. Raunar greiddum við meira en farið var fram á. Ríkisskattstjóri hafði ákvarðað tiltekna upphæð en við bentum á að miðað við forsendurnar sem lágu til grundvallar hefði ríkisskattstjóri vanáætlað hvað við ættum að greiða (við erum samsköttuð). Mér var tjáð að það þættu nokkur nýmæli að skattgreiðandi sem fengi ákvarðaðan á sig skatt færi fram á að ákvörðunin yrði hækkuð.
Málinu var svo vísað til yfirskattanefndar til endanlegrar afgreiðslu. Endanleg niðurstaða liggur nú fyrir einu og hálfu ári eftir að þetta hófst allt saman. Úrskurður Yfirskattanefndar er eftirfarandi: „Hinar kærðu breytingar ríkisskattstjóra eru felldar niður. Málskostnaður til greiðslu úr ríkissjóði ákveðst 500.000 kr.“
Eiginkona mín hefur þegar fengið endurgreiðslu vegna ofgreiddra skatta en auk þess mun uppsafnað tap dragast frá á næstu árum.
Ef til vill ætti maður að þakka sjónvarpsmönnum fyrir að benda á að eiginkona mín geti sparað sér skattgreiðslur. Mér hefði þó þótt heiðarlegra að sú ábending bærist með öðrum hætti en raun varð. Ef heiðarleg vinnubrögð hefðu verið viðhöfð og ég eða kona mín einfaldlega verið spurð út í félagið hefði verið hægt að veita allar upplýsingar eins og raunar var gert. Það var hins vegar ekkert tillit tekið til skýringanna því búið var að skrifa handrit fyrir fram. Í stað þess að leita sannleikans var leitast við að draga upp hið gagnstæða með mikilli fyrirhöfn. Sett á svið leikrit, reynt við að blekkja og rugla bæði viðmælendur og áhorfendur, viðtal tekið úr samhengi til að láta það líta út fyrir að vera allt annað en lagt var upp með, litið fram hjá svörum, skýringum og staðreyndum. Tilgangurinn hafði ekkert með sannleiksleit að gera. Handrit og framleiðsla snerust um að reyna að niðurlægja forsætisráðherra Íslands og þar með landið í útlöndum og, eins og við fengum að heyra, fella ríkisstjórn landsins.
Hvergi annars staðar voru önnur eins vinnubrögð viðhöfð, ekki einu sinni í Bretlandi þar sem forsætisráðherrann hafði þó haft raunverulegan ávinning af eignum sem skattlagðar voru á lágskattasvæði en ekki í heimalandinu.
Umboðsmaður Alþingis tók fljótt af allan vafa um hæfi enda hefði það skotið skökku við ef maðurinn sem var stöðugt að berjast fyrir því að fórna hagsmunum eigin fjölskyldu hefði talist vanhæfur en ekki allir hinir sem gerðu ráðstafanir sem vörðu eigin hagsmuni (og annarra).
Öllu skynsömu fólki má vera ljóst að þótt það hefði ef til vill þjónað pólitískum hagsmunum mínum að auglýsa að ég væri stöðugt að berjast fyrir lagabreytingum sem myndu ganga á hagsmuni eiginkonu minnar hefði slíkt ekki hjálpað til í baráttunni fyrir þeim markmiðum eða þjónað hagsmunum íslensks samfélags. Niðurstaðan varð sú að baráttan vannst og markmiðin náðust.
Niðurstaðan varðandi eiginkonu mína er því sú að hún hefur alltaf leitast við að leggja sitt af mörkum til samfélagsins (samanlagðar skattgreiðslur nema á fimmta hundrað milljónum á núvirði), hún hefur ekki nýtt þau tækifæri sem gáfust til að skattleggja eignir sínar í lágskattaríkjum, hún tapaði stórum hluta eigna sinna í bankahruninu og meiru til með lagabreytingum eftir hrun. Næst fórnaði hún enn meiru af því sem eftir var af inneigninni hjá hinum föllnu bönkum til að hægt væri að koma til móts við skuldsett íslensk heimili og bjarga efnahag landsins (og var einn helsti hvatamaður minn í þeim efnum). Hún lét vera að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum á meðan ég væri í stjórnmálum, nýtti sér ekki leið sem henni bauðst til að kaupa krónur á afslætti í gegnum Seðlabanka Íslands og fannst rangt að hagnast á þeim verðtryggðu háu vöxtum sem ég var að berjast gegn. Fyrir vikið, og fyrir að vera gift mér, hefur hún samt mátt þola hreint níð frá mörgum pólitískum andstæðingum mínum og eftir að því tók að linna frá nokkrum fyrrverandi samherjum mínum.
Það er þó fyrst og fremst ástæða til að nota þetta tækifæri til að þakka öllum þeim sem sáu í gegnum moldviðrið og veittu okkur hjónum ómetanlegan stuðning, allt frá því að ráðast í eigin rannsóknir eða standa með mér í pólitíska slagnum að því að veita kærkomna hvatningu á götum úti, í símtölum eða eftir öðrum leiðum. Mér finnst líka ástæða til að þakka þeim sem lögðu á sig mikla vinnu við að yfirfara málið og leiða hið rétta fram hvort sem þeir voru í vinnu fyrir okkur eða samfélagið. Þótt ég hafi ávallt verið meðvitaður um að allt væri með felldu verð ég að viðurkenna að eftir allt það sem á undan var gengið óttaðist ég að það kynni að reynast erfitt að kveða upp eins afdráttarlausan úrskurð og raunin varð.
Ný verkefni og tækifæri bíða og ég hlakka til að vinna að þeim af fullum krafti.
Skoðun

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar