Yfir á rauðu á öðru hverju ljósi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. október 2017 11:03 Frá gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar þar sem framkvæmdir stóðu yfir í sumar. Lögreglan
Margir virða ekki umferðarreglur og fara yfir á rauðu ljósi. Þetta eru niðurstaða athugunar sem VÍS gerði á tveimur fjölförnum gatnamótum á dögunum. Athugunin var gerð á annatíma, að morgni og síðdegis, og sýndi að farið var yfir á rauðu á öðru hverju ljósi að jafnaði. Svo segir í tilkynningu frá VÍS. Skoðunin fór fram við gatnamót Fjallkonuvegar og Gullinbrúar í Grafarvogi og á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar. Í annað hvert skipti sem rautt ljós kom í Grafarvogi ók einhver yfir á rauðu, samtals sautján ökumenn. Hlutfallið var aðeins betra á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar eða 45%. Þar voru 53 ökutæki sem fóru yfir á rauðu þann tíma sem fylgst var með umferðinni. Árið 2016 voru um hundrað umferðarslys tilkynnt til VÍS þar sem ökumaður hafði ekið yfir á rauðu. Það er hærra hlutfall en 10 ára meðaltal sýnir sem er um 80 slys á ári. Hraði ökutækja er oft nokkur í þessum slysum, alvarleiki þeirra oft töluverður og sök þess sem fer yfir á rauðu algjör. Sekt við akstri yfir á rauðu ljósi er 15 þúsund krónur ásamt tveimur punktum í ökuferilskrá. Ef allir sem fóru yfir á rauðu þann tíma sem kannanirnar voru gerðar hefðu verið sektaðir hefði heildarupphæðin hljómað uppá rúma milljón krónur. Þá upphæð væri hægt að tvöfalda ef tillögur, sem eru til skoðunar hjá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, verða samþykktar en þá verður sekt vegna aksturs gegn rauðu ljósi hækkuð upp í þrjátíu þúsund krónur.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Innlent Fleiri fréttir Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar Hafa þurft að leiðbeina starfsfólki barnaverndar um réttindi fósturbarna Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Sjá meira