Fótbolti

Argentínumenn í stórhættu á að missa af HM í Rússlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Útlitið er ekki bjart fyrir Lionel Messi og félaga.
Útlitið er ekki bjart fyrir Lionel Messi og félaga. Vísir/Getty
Argentínska landsliðið er í sjötta sæti í undanriðli undankeppni HM í Suður-Ameríku fyrir lokaumferðina eftir markalaust jafntefli við Perú á heimavelli sínum í nótt.

Argentína þarf að vinna lokaleikinn sinn á útivelli á móti Ekvador til að eiga möguleika á því að komast á HM í Rússlandi næsta sumar.

Takist það ekki mun Argentína missa af HM en það hefur ekki gerst síðan á HM í Mexíkó 1970.

Vinni argentínska landsliðið lokaleikinn sinn í Ekvador þá tryggir liðið sér umspilsleiki á móti Nýja-Sjálandi.

Fjórar efstu þjóðirnar í Suður-Ameríku riðlinum komast beint inn á HM en liðið í fimmta sæti fer í umspilsleiki á móti Eyjaálfuþjóð.

Lionel Messi var með argentínska landsliðinu í gær en það breytti ekki því að liðið skoraði ekki á heimavelli. Messi átti reyndar skot í stöngina í seinni hálfleik og fékk hrós frá þjálfaranum Jorge Sampaoli fyrir að gefa mikið af sér í leiknum.

49 þúsund manns mættu á leikinn á La Bombonera leikvanginn í Buenos Aries en gátu ekki öskrað sína menn til sigurs.

Eftir leikinn eru einmitt Argentína og Perú jöfn að stigum (25) og markatalan er jöfn (+1) en lið Perú hefur skorað fleiri mörk og situr því í umræddu fimmta sæti. Argentínumenn eru í sjötta sæti og það sæti gefur ekki neitt.

Það munar hinsvegar ekki miklu á liðunum og í raun aðeins fjórum stigum á liðunum í öðru og sjöunda sæti en Brasilíumenn eru á toppnum og komnir inn á HM.

Úrúgvæ er í öðru sæti með 28 stig og Paragvæ er með 24 stig í sjöunda sætinu. Svo gæti því farið að sigur hjá Argentínumönnum í lokaleiknum gæti tryggt þeim eitt af fjórum öruggu sætunum á HM í Rússlandi.

Leikurinn í Ekvador fer fram á miðvikudaginn í næstu viku en hann er spilaður í 2900 metra hæð. Argentínumenn hafa tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum þarna og gerðu jafntefli í þeim þriðja.

Það má því vissulega hafa áhyggjur af Argentínumönnum sem mæta í þessar öfga aðstæður til að berjast fyrir sæti á HM í Rússlandi 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×