Skoðun

Eru verðmætin fólgin í náttúrunni?

Benedikt Traustason skrifar
Á næstum árum og áratugum munu eiga sér stað miklar breytingar á náttúrunni vegna hlýnunar loftslags sem gerist nú á fordæmalausum hraða. Þær breytingar munu hafa áhrif á öll vistkerfi jarðar en mest hér á norðurslóðum. Nú þegar hafa fyrstu vísar að breytingum á náttúrunni komið í ljós en hnignun bleikjustofna í vötnum sunnanlands, fækkun háfjallaplantna og heimskautafuglategunda eru aðeins upptaktur þess sem koma skal. Súrnun sjávar, hörfun stofna nytjafiska, útbreiðsla meindýra og sjúkdóma í villtum lífverum verða brátt óumflýjanlegur veruleiki. Því er ágætt að spyrja sig til hvaða ráða ætla stjórnvöld að grípa?

Undanfarin 10 ár hefur nær stöðugt verið skorið niður til líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands. Innan þeirrar deildar eru m.a. ferðamálafræði, en ferðaþjónusta er ein meginstoð íslensks atvinnulífs, og líffræði, sem gegnir lykilhlutverki við að skilja þær breytingar á náttúrunni sem við stöndum frammi fyrir. Innan þeirrar deildar eru þeir sérfræðingar sem treysta verður á til að draga úr óæskilegum áhrifum loftslagsbreytinga. Á seinustu 10 árum hefur námsframboð innan líffræðinnar verið rýrt, skyldufögum í grunnnámi verið fjölgað, valnámskeiðum fækkað um ríflega helming, verklegum kennslustundum fækkað um fjórðung og vettvangsferðir skornar burt eða skildar eftir í skötulíki.

Nám þeirra sem við ætlumst til að rannsaki áhrif loftslagsbreytinga og hvað kann að vera til ráða er þess vegna einsleitara, sérhæfing nemenda er minni og af þeim sökum er geta okkar til að takast á við loftslagsvandann takmarkaðri. Það er því grátbroslegtað hugsa til þess að stærstu atvinnuvegir Íslendinga eru og hafa verið byggðir á náttúrunni. Er þá sama hvort litið er til landbúnaðar, fisksins í sjónum eða lunda og hvala sem laða sífellt fleiri ferðamenn til landsins.

Í fjárlagafrumvarpi fráfarandi ríkisstjórnar er talað digurbarkalega um að fjölga ferðamannastöðum og að taka eigi á loftslagsvandanum. Aðgerðir í loftslagsmálum og aukin áhersla á uppbyggingu ferðamannastaða eru orðin tóm ef ekki fylgir stuðningur við menntun þeirra sem útfæra eiga aðgerðirnar.

Þar að auki standast framlög Íslendinga til háskólastigsins engan veginn alþjóðlegan samanburð. Fyrir hverja krónu sem Íslendingar leggja til háskólanema, verja Danir til að mynda tveimur krónum, og reyndar gott betur. Óveruleg hækkun framlaga til Háskóla Íslands á næsta ári er hvergi nærri nóg til að snúa við þeirri sveltistefnu sem hefur verið viðvarandi í háskólakerfinu.

Hvaða skilaboð senda þessi fjárlög í raun og veru? Jú, að náttúran sé ekki hluti af verðmætum landsins.

Greinin er hluti af átaki Stúdentaráðs Háskóla Íslands í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun.


Tengdar fréttir

Kjóstu menntun 28. október

Nú liggur fyrir að kosið verður á ný til Alþingis, 364 dögum eftir síðustu kosningar. Hagsmunahreyfingar stúdenta telja nauðsynlegt að hafa málefni eins og fjármögnun háskólastigsins í forgrunni þegar kemur að vali á fulltrúum á þingi og umræðum um nýja ríkisstjórn.

Mannauður er undirstaða heilbrigðisþjónustu

Undanfarin tvö ár hef ég setið í Stúdentaráði og þar fengið að kynnast mikilvægi hagsmunabaráttu og þess að nemendur hafi rödd. Það hefur verið magnað að fylgjast með hverju er hægt að hrinda í framkvæmd og hvað er hægt að hafa mikil áhrif.

Skiptir þessi háskóli máli?

Nú rúmum 100 árum eftir stofnun hefur starfsemi Háskóla Íslands vaxið og dafnað eins og sjá má á auknum nemendafjölda.

Hugvísindi í hættu

Háskóli Íslands er í fyrsta skipti í hópi 250 bestu háskóla heims á sviði hugvísinda samkvæmt nýjum lista Times Higher Education University Rankings




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×