Fótbolti

Arnór Ingvi: Höfum farið yfir hversu heppnir við vorum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór Ingvi er spenntur fyrir leiknum í Finnlandi.
Arnór Ingvi er spenntur fyrir leiknum í Finnlandi. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason, leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, segir að ekkert vanmet sé í íslenska hópnum fyrir leikinn mikilvæga gegn Finnum á morgun.

Leikurinn er liður í undankeppni HM í Rússlandi sem fer fram næsta sumar, en Króatía og Ísland eru á toppi I-riðils bæði með 13 stig. Finnarnir eru í næst neðsta sæti riðilsins með eitt stig.

„Þetta var mjög erfið síðast. Þeir eru mjög sterkir og sterkari en fólk gerir sér grein fyrir," sagði Arnór Ingvi í samtali við Óskar Ófeig Jónsson, blaðamann Fréttablaðsins og Vísis, á æfingu landsliðsins í gær.

„Þeir eru mjög góðir í fótbolta og spila hjá mjög sterkum félagsliðum. Ég býst við mjög erfiðum leik gegn Finnunum."

Ísland vann dramatískan sigur í fyrri leik liðanna á Laugardalsvelli sem endaði með 3-2 sigri okkar manna, en þar komu tvö mörk í uppbótartíma.

„Auðvitað væri maður til í að þetta yrði þægilegt, en við vitum að þetta verður ekki svo. Þeir munu setja pressu á okkur og munu taka hart á okkur. Þetta er aftast í hausnum á þeim fyrri leikurinn."

„Við höfum alveg farið yfir hversu heppnir við vorum síðast, en aftur á móti þá erum við mjög sterkir í þessum föstu leikatriðum. Þeir hafa bætt við sig leikmönnum sem eru hærri í loftinu svo þetta situr í þeim."

Arnór Ingvi gekk í sumar í raðir AEK Aþenu í Grikklandi, en hann kom þaðan á láni frá Rapid Wien. Keflvíkingnum líkar vel þar.

„Mér líður mjög vel í Grikklandi. Lífið er mjög gott og það er gott að vera þarna, en svo er maður að kynnast fótboltanum aðeins betur."

„Þetta er nýtt fyrir manni og það eru tveir til þrír í samkeppni um hverja stöðu. Þetta er stór hópur og maður er að koma meira og meira inn í þetta."

„Ég er hugsaður sem alls staðar í kringum framherjann. Það er bara að leggja hart að sér og sjá hvað þjálfarinn vill nota mann í."

Grikkirnir eru þekktir fyrir mikla ástríðu á pöllunum og Arnór segist strax vera búinn að taka eftir því.

„Þeir er blóðheitir og það fer ekkert framhjá neinum. Maður sá það strax þegar maður mætti á flugvellinum að þeir eru blóðheitir. Þú getur verið kóngurinn einn dag og lúserinn þann næsta," sagði Arnór Ingvi að lokum í Finnlandi.


Tengdar fréttir

Gylfi: Lítið pláss fyrir mistök

Íslenska fótboltalandsliðið undirbýr sig nú af kappi fyrir leikinn mikilvæga gegn Finnum í Tampere í undankeppni HM á laugardaginn.

Var hátt uppi eftir EM

Ragnar Sigurðsson var hetja íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í dramtískum sigri á Finnum fyrir tæpu ári. Nú er Ragnar farinn frá Englandi og kominn aftur í rússnesku deildina. Hann leitar hins vegar ekki að blóraböggli út af því hvernig þetta endaði hjá Fulham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×