Sviss ekki í vandræðum með Letta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Svisslendingar áttu ekki í vandræðum með Letta í kvöld þegar liðin mættust í undankeppni Heimsmeistarmótsins í Rússlandi.

Haris Seferovic kom gestunum yfir strax á 9. mínútu leiksins. Blerim Dzemaili fékk tækifæri til þess að tvöfalda forystuna á 32. mínútu þegar hann fór á vítapunktinn, en hann skaut langt yfir markið.

Dzemaili bætti svo fyrir mistökin á 55. mínútu þegar hann skoraði annað mark Svisslendinga.

Ricardo Rodriguez innsiglaði svo sigur Sviss á 58. mínútu þegar Sviss fékk sína aðra vítaspyrnu í leiknum.

Sviss situr á toppi B-riðils með 24 stig eftir 8 leiki





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira