Úkraínumenn á toppi riðilsins Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. september 2017 20:45 Úr fyrri leik liðanna í Tyrklandi. vísir/getty Úkraínumenn eru á toppi I-riðils eftir 2-0 sigur á Tyrklandi í kvöld. Króatía á hins vegar leik til góða á morgun þar sem þeir geta endurhemt toppsætið. Íslendingar vonuðust eftir jafntefli þessara liða eftir tapið gegn Finnum fyrr í dag. Andriy Yarmolenko, sóknarmaður þýska liðsins Dortmund, var hins vegar ekki á því að gera Íslendingum neina greiða. Hann skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, á 18. og 42. mínútu, og tryggði liði sínu sigurinn í dag. Næsti leikur Úkraínumanna í keppninni er á Laugardalsvelli á þriðjudaginn, 5. september, þar sem Íslendingar ætla sér að komast aftur upp fyrir Úkraínu í riðlinum. HM 2018 í Rússlandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti