Fótbolti

Laugardalsvöllur er sannkallað vígi | 1551 dagur án taps

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn landsliðsins taka víkingaklappið með stuðningsmönnum í gær.
Leikmenn landsliðsins taka víkingaklappið með stuðningsmönnum í gær. Vísir/Eyþór
Ótrúlegt gengi íslenska landsliðsins í knattspyrnu heldur áfram en liðið vann í gær glæsilegan 2-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM 2018. Eftir sigurinn eru strákarnir okkar jafnir Króatíu á toppi I-riðils þegar tvær umferðir eru eftir.

Ísland á eftir einn heimaleik í núverandi undankeppni en strákarnir hafa unnið alla hingað til - gegn Finnlandi, Tyrklandi, Króatíu og nú Úkraínu. Strákarnir mæta botnlði Kósóvó í lokaleik riðlakeppninnar á Laugardalsvelli í næsta mánuði.

Sjá einnig: Farseðill til Rússlands yrði mesta afrek í knattspyrnusögu Íslands

Ísland spilaði einnig alla heimaleiki sína í síðustu undankeppni án þess að tapa en síðasti tapleikur íslenska liðsins á Laugardalsvelli kom þegar okkar menn fengu á sig fjögur mörk gegn Slóveníu í 4-2 tapleik þann 7. júní 2013.

Síðan þá eru liðnir 4 ár, 2 mánuðir og 29 dagar eða 1551 dagur alls. Ísland hefur á þessum tíma spilað fimmtán landsleiki á þjóðarleikvanginum - unnið tólf þeirra og gert þrjú jafntefli.

Markatalan í þessum fimmtán leikjum er ekki síður glæsileg en Ísland hefur skorað 27 mörk í þessum fimmtán leikjum en fengið aðeins sex mörk á sig.

Sjá einnig: Draumurinn um Rússland lifir

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í leiknum í gær og er nú kominn með sautján mörk alls fyrir landsliðið, jafn mörg og Ríkharður Jónsson heitinn skoraði á sínum tíma. Aðeins Eiður Smári Guðjohnsen og Kolbeinn Sigþórsson hafa skorað fleiri mörk í íslensku landsliðstreyjunni.

Næsti leikur Íslands fer fram gegn Tyrklandi ytra þann 6. október. Sigur í þeim leik setur Ísland í lykilstöðu í baráttunni um sæti í lokakeppni HM í Rússlandi.

Leikir Íslands á Laugardalsvelli síðan 2013:

2013:

7. júní: Ísland - Slóvenía 2-4

14. ágúst: Ísland - Færeyjar 1-0

10. september: Ísland - Albanía 2-1

11. október: Ísland - Kýpur 2-0

15. nóvember: Ísland - Króatía 0-0

2014:

4. júní: Ísland - Eistland 1-0

9. sept: Ísland - Tyrkland 3-0

13. október: Ísland - Holland 2-0

2015:

12. júní: Ísland - Tékkland 2-1

6. sept: Ísland - Kasakstan 0-0

10. okt: Ísland - Lettland 2-2

2016:

6. júní: Ísland - Liechtenstein 4-0

6. okt: Ísland - Finnland 3-2

9. okt: Ísland - Tyrkland 2-0

2017:

11. júní: Ísland - Króatía 1-0

5. sept: Ísland - Úkraína 2-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×