Fótbolti

Hvernig komast strákarnir okkar til Rússlands?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í gær.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í gær. Vísir/Eyþór
Ísland er í lykilstöðu í I-riðli undankeppni HM 2018 eftir 2-0 sigur á Úkraínu á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Eftir sigurinn eru Ísland og Króatía jöfn á toppi riðilsins með sextán stig hvort þegar tvær umferðir eru eftir. Króatar hafa þó betri markatölu sem munar fimm mörkum.

Íslenskt landslið hefur aldrei áður tryggt sér þátttökurétt í lokakeppni heimsmeistaramóts í knattspyrnu en möguleikarnir að þessu sinni eru góðir.

Sjá einnig: Farseðill til Rússlands yrði mesta afrek í knattspyrnusögu Íslands

Sigurvegari hvers riðils kemst beint í lokakeppnina en átta af þeim níu liðum sem enda í öðru sæti síns riðils tryggja sér sæti í umspili sem fer fram í nóvember um laust sæti á HM.

Ísland komst í slíkt umspil fyrir fjórum árum síðan og mátti þá sætta sig við tap gegn Króatíu, 2-0 samanlagt. Leikið var heima og að heiman.

Ekki nóg að vinna báða leikina

Ef að Ísland og Króatía halda stöðu sinni til loka riðlakeppninnar og verða jöfn að stigum í efsta sæti mun árangur í innbyrðisviðureignum ekki ráða því hvort liðið endi ofar. Það verður einfaldlega það lið sem er með betra markahlutfall og sem stendur eru Króatar með mun hagstæðari markatölu (12-3) en Ísland (11-7).

Það er því líklegt að Ísland þurfi að vinna báða leiki sína sem eftir eru, gegn Tyrklandi á útivelli og Kósóvó heima, og treysta á að Króatía misstígi sig í öðrum sinna leikja (Finnland heima og Úkraína úti) til að strákarnir okkar vinni riðilinn og fari beint á HM í Rússlandi.

Það eru fleiri möguleikar í stöðunni enda Tyrkland og Úkraína enn í baráttunni um efsta sæti riðilsins. Bæði lið eru með fjórtán stig, tveimur á eftir Króatíu og Íslandi.

Eins og sakir standa væri það Wales sem sæti eftir sem það lið í öðru sæti riðils síns sem væri með lakastan árangur. Í þessum samanburði eru úrslitin gegn liðinu í neðsta sæti dregin frá. Sigur Íslands í Kósóvó telur sem dæmi ekki.Wikipedia
Mikilvægur leikur í Tyrklandi

Líklegt er að fjögur stig dugi Íslandi til að komast í umspilið, en það er ekki öruggt að það sé nóg. Ef Ísland kemst í 20 stig munu Tyrkir ekki ná okkar mönnum að stigum, enda myndi það þýða að Ísland myndi annað hvort vinna eða gera jafntefli við Tyrkland í Eskisehir þann 6. október.

Úkraína gæti einnig náð 20 stigum en þyrfti þá að vinna Króatíu í lokaumferðinni. Ísland og Úkraína myndu þá enda jöfn í efsta sæti riðilsins og markahlutfall myndi ráða hvort liðið endaði ofar.

Allar líkur eru á því að 20 stig í öðru sæti riðilsins myndu duga Íslandi eða Úkraínu til að ná einu af átta umspilssætunum. Við þann samanburð eru úrslitin gegn liðinu sem hafnar í neðst sæti riðilsins dregin frá heildarstigafjöldanum í samanburði við hin liðin í öðru sæti riðlanna.

Sex stig myndu því dragast frá Íslandi og liðið enda með 14 stig í samanburðinum.

Strákarnir okkar fagna.Vísir/Eyþór
Dugar sigur á Kósóvó?

Ef að Ísland tapar fyrir Tyrklandi þann 6. október er mjög líklegt að strákarnir okkar verði í fjórða sæti riðilsins fyrir lokaumferðina. Þá yrði erfitt að komast aftur upp í annað sætið með því að leggja Kósóvó að velli en Ísland þyrfti þá að treysta á sigur Króatíu í Úkraínu og að Tyrkland myndi ekki vinna í Finnlandi á sama tíma.

Mikilvægi leiks Tyrklands og Íslands er af þeim sökum gríðarlegt. Ekki aðeins myndi eitt stig í þeim leik hjálpa Íslandi mjög mikið heldur einnig halda Tyrklandi tveimur stigum fyrir neðan Ísland í stigatöflunni.

Enginn riðill er jafn spennandi og sá íslenski í undankeppni HM 2018 og hér er aðeins búið að fara yfir nokkra möguleika í stöðunni. Heimir Hallgrímsson og leikmenn landsliðsins ætla sjálfsagt aðeins að hugsa um að vinna sína leiki og vona að það sé nóg.

Hér fyrir neðan má sjá stigafjölda liða í toppbaráttu I-riðils og hvaða leiki hvert lið á eftir.

1. sæti: Króatía (16 stig)

Markatala: 12-3

Leikir eftir:

Króatía - Finnland

Úkraína - Króatía

2. sæti: Ísland (16 stig)

Markatala: 11-7

Leikir eftir:

Tyrkland - Ísland

Ísland - Kósóvó

3. sæti: Tyrkland (14 stig)

Markatala: 12-8

Leikir eftir:

Tyrkland - Ísland

Finnland - Tyrkland

4. sæti: Úkraína (14 stig)

Markatala: 11-7

Leikir eftir:

Kósóvó - Úkraína

Úkraína - Króatía


Tengdar fréttir

Draumurinn um Rússland lifir

Stórkostlegur seinni hálfleikur hjá íslenska landsliðinu á Laugardalsvelli í gær varð til þess að Ísland vann magnaðan 2-0 sigur á Úkraínu. Strákarnir eru því komnir í bullandi baráttu á nýjan leik um sæti á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×