Fá meðferð við afleiðingum kynferðisofbeldis en ekki ofbeldinu sjálfu Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. ágúst 2017 13:00 Sigrún Sigurðardóttir, doktor í hjúkrunarfræði, er einn stofnenda Gæfuspora, meðferðarúrræða fyrir þolendur ofbeldis. Sigrún Sigurðardóttir/Gæfuspor
Doktor í hjúkrunarfræði segir nauðsynlegt að koma meðferð við kynferðisofbeldi inn í heilbrigðiskerfið. Ótækt sé að þolendur kynferðisofbeldis fái einungis meðferð við afleiðingum ofbeldisins, eins og fíknivanda, geðrænum kvillum og líkamlegum sjúkdómum, en ekki sé boðið upp á meðferð við ofbeldinu sjálfu. Þá sýna rannsóknir fram á nokkurn kynbundinn mun á afleiðingum kynferðislegs ofbeldis í æsku.Sigrún Sigurðardóttir, doktor í hjúkrunarfræði og lektor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.Sigrún SigurðardóttirSigrún Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, varði doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði þann 9. júní síðastliðinn. Í ritgerð sinni skoðaði Sigrún afleiðingar kynferðisofbeldis í æsku fyrir bæði karla og konur á aldrinum 25-50 ára. Þá rannsakaði hún svokölluð „heildræn meðferðarúrræði“ við ofbeldinu.Vöntun á meðferð við ofbeldinu sjálfu í heilbrigðiskerfiðNiðurstöður ritgerðar sinnar segir Sigrún í grunninn vera þær að afleiðingar kynferðisofbeldis í æsku séu mjög alvarlegar, bæði fyrir líkama þolenda og sál. Hún segir bráða vöntun á úrræðum fyrir þolendur inn í heilbrigðiskerfið. „Nú er til dæmis verið að tala mikið um krabbameinsmeðferðir og hvernig fólk þarf að borga þær sjálft. En ef þú verður fyrir ofbeldi þá færðu enga sjálfkrafa úrvinnslu í kerfinu. Krabbameinssjúklingar fá meðferð en það er engin meðferð, þannig lagað, fyrir þolendur kynferðisofbeldisins innan kerfisins. Ef þú ert alkóhólisti þá flýgurðu inn á Vog en ef þú hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku þá er enginn sem grípur þig í kerfinu,“ segir Sigrún. Hún segir enn fremur meðferðina sem í boði er nær einungis einblína á afleiðingar ofbeldisins. Þannig sækir fólk meðferð við geðrænum vandamálum, fíkn o.s.frv., en meðferðir við ofbeldinu sjálfu vanti. „Þegar ég talaði til dæmis við karlmennina hafði enginn af þeim fengið meðferð. Þeir höfðu bara farið á Vog, af því að þeir áttu við áfengis- eða fíknivandamál að stríða, og þeir sem voru lengst leiddir enduðu jafnvel inni á geðdeild með þunglyndi.“Konur veikjast af líkamlegum kvillum en karlar leiðast út í neyslu og afbrotSigrún segir nokkurn kynjamun hafa komið í ljós á afleiðingum kynferðisofbeldisins. Konur beini tilfinningum sínum inn á við en karlar út á við. „Afleiðingarnar eru margar eins en meginmunurinn er að konum hættir meira til að beina tilfinningunum inn á við þannig að þær verða frekar líkamlega veikar, fá sjúkdóma. Það sést að áföll af þessu tagi, kynferðisofbeldi, geta greinilega leitt til flestra líkamlegra sjúkdóma. Þolendur eru að glíma við verki, vefjagift og jafnvel krabbamein,“ segir Sigrún.Um 80 konur hafa sótt meðferð hjá Gæfusporum síðan árið 2011.„Strákar segja síður frá og þeir virðast beina tilfinningum sínum meira út á við. Þeir fara til dæmis í fíkniefna- og áfengisneyslu, afbrot og þeir náttúrulega fyrirfara sér frekar. Og það er það sem hefur verið í svolitlum feluleik hjá okkur, það eru ungir drengir, það er talað um að einn af hverjum sex drengjum verði fyrir kynferðisofbeldi fyrir átján ára aldur.“ Karlarnir sem Sigrún ræddi við í einni af rannsóknum sínum glímdu til að mynda við námsörðugleika, einelti og áfengis- og fíkniefnaneyslu. Þeir áttu erfitt með að tengjast mökum og börnum, höfðu gengið í gegnum hjónaskilnaði og voru allir forsjárlausir feður.Samblanda af sálfræðimeðferð, jóga og hugleiðslu reynst bestSigrún er einn stofnenda Gæfuspora, meðferðarúrræðis fyrir þolendur ofbeldis. Í Gæfusporum er unnið með sálfræðimeðferð, hópmeðferð, líkamsvitund, jóga, listmeðferð, hreyfingu og matarræði svo fátt eitt sé nefnt. Meðferðin er þó aðeins í boði fyrir konur eins og er en Sigrún vonast til þess að einhvern tímann verði hægt að bjóða karlmönnum upp á sambærileg úrræði. Meðferð á borð við þá sem boðið er upp á hjá Gæfusporum segir Sigrún hafa reynst þolendum kynferðisofbeldis í æsku best. „Það er það sem hefur reynst best, þessi massíva meðferð. Gæfusporin eru tíu vikna prógram alla daga vikunnar. Við höfum verið með þetta í gangi hér í Starfsendurhæfingarstöð Norðurlands og líka í Mjóddinni í Reykjavík.“ Gæfuspor hafa aðstoðað um 80 konur síðan árið 2011. Sigrún segir starfsemina þó algjörlega háða styrkjum og því sé, eins og áður sagði, ótrúlega mikilvægt að innlima meðferð sem einblínir á ofbeldið sjálft inn í heilbrigðiskerfið. „Það sem gengur best er einmitt að fara inn í meðferðina á þeim forsendum að þú hafir orðið fyrir kynferðisofbeldi en ekki á forsendum afleiðinganna.“
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Fleiri fréttir Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Sjá meira