Borussia Dortmund stal stjóranum frá Ajax Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2017 13:00 Peter Bosz talar við sína menn hjá Ajax. Vísir/Getty
Peter Bosz verður næsti knattspyrnustjóri þýska liðsins Borussia Dortmund en félagið tilkynnti nýja stjórann sinn í dag. Dortmund er þarmeð að taka þjálfarann af Ajax en Peter Bosz var með samning við hollenska liðið til ársins 2019. Bosz tekur við stafinu hjá Dortmund af Thomas Tuchel sem hætti óvænt með liðið eftir tveggja ára starf. Samningur Peter Bosz og Dortmund er til næsti tveggja tímabila eða fram á sumar 2019. Bosz tók við Ajax-liðinu af Frank de Boer í byrjun síðasta tímabils en undir stjórn Bosz komst hollenska liðið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þar sem liðið tapaði 2-0 fyrir Manchester United. „Ég hef blendnar tilfinningar. Þegar við fengum Peter til að taka við Ajax síðasta sumar þá var það ekki stefnan að samstarfið myndi enda eftir aðeins eitt ár,“ sagði Edwin van der Sar, framkvæmdastjóri Ajax. „Við áttum frábært tímabil og þá sérstaklega í Evrópudeildinni. Það er bara eins og með leikmennina okkar að það er mikill áhugi á þeim frá liðum í stærstu deildum Evrópu,“ sagði Van der Sar. Peter Bosz er 54 ára gamall Hollendingur. Hann lék á sínum tíma sem miðjumaður og var lengst hjá Feyenoord. Hann var sem dæmi á miðjunni hjá Feyenoord þegar liðið tapaði 1-0 á móti ÍA á Laugardalsvellinum í september 1993.Peter Bosz með Jose Mourinho eftir úrslitaleik Evrópudeildarinnar.Vísir/Getty
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Sjá meira