Sautján ára piltur skotinn til bana í átökunum í Venesúela Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. maí 2017 23:50 Forseti landsins er sakaður um einræðistilburði og fólkið vill hann frá. vísir/afp
Þrír voru skotnir til bana í mótmælum í Venesúela í dag, þar af einn sautján ára piltur. Hinir tveir voru rúmlega þrítugir. Mótmælin hafa nú staðið yfir í sex vikur samfleytt og er fjöldi látinna kominn í fjörutíu og tvo. Átökin þar í landi hafa verið hörð og hefur lögregla ítrekað beitt háþrýstidælum og táragasi á mótmælendur, sem hafa svarað fyrir sig með grjótkasti og bensínsprengjum. Þá eru vopn gjarnan á lofti, en mennirnir þrír sem létust í dag urðu allir fyrir byssuskoti. Pilturinn var skotinn í höfuðið. Mótmælendur hafa komið saman á götum úti um árabil til þess að mótmæla Nicolas Maduro, forseta landsins. Hann er sakaður um að hafa valdið bæði pólitískri og efnahagslegri kreppu í landinu og sagður vanhæfur til þess að stjórna því. Sömuleiðis er hann sakaður um einræðistilburði, en Maduro hefur lýst því yfir að hann muni sitja út kjörtímabilið. Nýjustu mótmælin brutust út þegar Maduro tilkynnti um breytingar á stjórnarskrá landsins sem kveða á um að stjórnlagaþingi verði komið á fót. Þannig verði stjórnarskráin færð úr höndum þingsins, þar sem stjórnarandstaðan er í meirihluta. Það reyndist hins vegar olía á eldinn og virðist ekkert lát vera á mótmælunum sem staðið hafa yfir í um fimmtíu borgum Venesúela.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira