Einn af hverjum fimm Áströlum orðið fyrir hefndarklámi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. maí 2017 09:01 Karlar eru jafn líklegir og konur til þess að verða fyrir stafrænu kynferðisofbeldi. vísir/getty
Einn af hverjum fimm Áströlum hefur orðið fyrir hefndarklámi á ævinni, samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í landinu. Þá eru karlar jafn líklegir og konur til þess að verða fyrir stafrænu kynferðisofbeldi. Fimmtungur aðspurðra sagðist hafa lent því því að nektarmyndir hafi verið teknar af sér án leyfis og ellefu prósent sögðu myndirnar hafa verið settar í dreifingu. Karlar eru líklegri gerendur og þá eru konur líklegri til þess að hafa meiri áhyggjur af hefndarklámi og afleiðingum þess. Minnihlutahópar eru sömuleiðis líklegri til þess að verða fyrir slíku ofbeldi, en þá er meðal annars átt við fatlaða og hinsegin fólk.Vilja lög um hefndarklámBreska ríkisútvarpið hefur eftir forsvarsmönnum könnunarinnar að niðurstöðurnar hafi leitt það í ljós að stafrænt kynferðisofbeldi sé mun útbreiddara en áður var talið. Hafa þeir lagt til að sérstakur gagnagrunnur verði settur á fót svo hægt verði að halda úti eftirliti í slíkum málum. Þeir segja gerendur nota myndirnar til þess að stjórna fólki, misnota það og niðurlægja og vilja að hefndarklámi verði komið inn í hegningarlög í landinu. Dreifing kynferðislegs efnis, hvort sem um er að ræða ljósmyndir eða myndbönd, í óþökk þess sem á því birtist hefur verið kallað stafrænt kynferðisofbeldi, hrelliklám eða hefndarklám. Tvívegis hefur verið gerð tilraun til að skilgreina slíkt ofbeldi í hegningarlögum hér á landi en í hvorugt skiptið náði frumvarpið fram að ganga. Ástralska könnunin er sú umfangsmesta af sínu tagi þar í landi en hún náði til 4.200 manns.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira