Gyða með útgáfutónleika í Dómkirkjunni Stefán Árni Pálsson skrifar 2. mars 2017 11:30
Gyða Valtýsdóttir gaf nýlega út plötuna Epicycle sem meðal annars fékk Kraumsverðlaun 2016 og var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í opnum flokki. Gyða heldur útgáfutónleika í Dómkirkjunni þann 3. mars 2017 kl. 21:00. Epicycle er einstök þyrping verka sem spanna rúm tvöþúsund ár í sögu tónlistar. Hljómplatan inniheldur meðal annars útsetningu á elsta lagi sem fundist hefur í heild sinni í grafreit í Tyrklandi, grískar stúdíur sérvitringsins Harry Partch, himnu eftir galdranunnuna Hildegard Von Bingen, Tónlist Guðs úr Svörtum englum George Crumb, Óð til eilífðarinnar eftir dulspekinginn Olivier Messiaen, ástarljóð Schumanns og einn af síðustu ópusum Schuberts, op. 100. Eftirfarandi listamenn koma að plötunni: Gyða Valtýsdóttir - selló & söngur. Shahzad Ismaily – gítar Julian Sartorius – trommur Júlía Morgensen - kristalglös Frank Aarnink - kristalglös, slagverk o.fl Óli Björn Ólafsson - kristalglös, slagverk Kristín Anna og Ásthildur Valtýsdætur - söngur Gyða Valtýsdóttir hóf tónlistarferilinn á táningsaldri með hljómsveitinni Múm. Hún yfirgaf sveitina til að einbeita sér að klassísku tónlistarnámi og lærði meðal annars í Rimsky-Korsakov Conservatory í St. Pétursborg og Hochschule für Music í Basel, þar sem hún lauk meistaranámi í sellóleik hjá Thomas Demenga og frjálsum spuna hjá Walter Fähndrich. Auk þess að koma fram með sína eigin tónlist, hefur hún samið tónlist fyrir kvikmyndir og dansverk og leikur reglulega með múm, Shahzad Ismaily, Josephine Foster, Julian Sartorius, Colin Stetson og og hefur unnið með fjölda annarra listamanna í gegnum árin, m.a. A Winged Victory for the Sullen, Efterklang, Dustin O'Halloran, Damien Rice, Ben Frost, Hilmari Jenssyni, Guy Maddin, Ólöfu Arnalds, Skúla Sverrissyni o.fl.Hér má hlusta á tónlist eftir Gyðu og hér að neðan má horfa á myndband þar sem hennar tónlist heyrist undir.
Tónlist Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira