Mánaðarlaun nýs forstjóra Hörpu verða 1,3 milljónir Anton Egilsson skrifar 21. febrúar 2017 20:37 Nýr forstjóri Hörpu tekur við þann 1. mars næstkomandi. Vísir/GVA
Nýr forstjóri Hörpu mun fá 1,3 milljónir króna í mánaðarlaun samkvæmt nýbirtum úrskurði kjararáðs. Mun nýr forstjóri taka við störfum af Halldóri Guðmundssyni þann 1. mars næstkomandi en ekki hefur verið ráðið í starfið. Kjararáð birti úrskurð um laun forstjóra Hörpu í dag en samkvæmt lögum um kjararáð skal kjararáð ákveða laun og starfskjör framkvæmdastjóra félaga sem eru að meirihluta í eigu ríkissjóðs og dótturfélaga þeirra. Ríkissjóður á 54 prósenta hlut í Hörpu. Í bréfi stjórnar Hörpu til kjararáðs frá 9. ágúst síðastliðnum segir að eðli starfs forstjórans krefjist mikillar viðveru utan hefðbundins vinnutíma og mikilvægt að hann sé sýnilegur á þeim fjölmörgu atburðum sem þar fari fram. Þá kemur einnig fram í bréfinu að forstjórinn sitji í stjórn dótturfélaga Hörpu auk Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík og þiggi ekki laun fyrir þau störf. Kjararáð segir í úrskurði sínum að það hafi ekki áður tekið ákvörðun um laun forstjóra Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. Við ákvörðun launa hans hefur verið höfð hliðsjón af umfangi og verkefnum félagsins.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira