Endurkomusigur Eyjamanna | Markasúpa fyrir austan Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. febrúar 2017 19:39 Hafsteinn Briem var á skotskónum gegn Fjölni. vísir/stefán
Eyjamenn fara vel af stað í Lengjubikarnum en í dag unnu þeir 2-3 endurkomusigur á Fjölnismönnum í riðli 2. Fjölnir, sem tapaði fyrir Val í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins fyrr í vikunni, var kominn í 2-0 eftir stundarfjórðung. Birnir Snær Ingason og Bojan Stefán Ljubicic skoruðu mörkin. Arnór Gauti Ragnarsson minnkaði muninn í 2-1 á 27. mínútu og eftir 10 mínútna leik í seinni hálfleik jafnaði Hafsteinn Briem metin. Það var svo Breki Ómarsson sem skoraði sigurmarkið á 73. mínútu. Íslandsmeistarar FH unnu 1-0 sigur á Haukum í grannaslag í riðli 1. Kristján Flóki Finnbogason skoraði eina markið eftir 33 mínútna leik. Víkingur R. gerði góða ferð norður og vann 0-1 sigur á KA í Boganum. Viktor Örlygur Andrason skoraði sigurmarkið á 10. mínútu. Í uppbótartíma var KA-maðurinn Hrannar Björn Steingrímsson rekinn af velli. Grindavík átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Leikni F. að velli í riðli 4. Lokatölur 0-5. Gunnar Þorsteinsson kom Grindvíkingum yfir strax á 2. mínútu. Þannig var staðan fram á 75. mínútu þegar William Daniels bætti öðru marki við. Juan Manuel Ortiz Jimenez (2) og Brynjar Ásgeir Guðmundsson skoruðu svo á síðustu 10 mínútum leiksins. Í sama riðli bar Þróttur sigurorð af Fram, 2-3, þrátt fyrir að vera einum færri í 55 mínútur eftir að Finnur Ólafsson var rekinn af velli. Sveinbjörn Jónasson skoraði sigurmarkið þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Tíu Blikar náðu í stig gegn Stjörnunni | Skagamenn unnu Vesturlandsslaginn Tveimur leikjum er lokið í Lengjubikar karla í dag. 18. febrúar 2017 13:46 Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Sjá meira
Tíu Blikar náðu í stig gegn Stjörnunni | Skagamenn unnu Vesturlandsslaginn Tveimur leikjum er lokið í Lengjubikar karla í dag. 18. febrúar 2017 13:46