
Hann fór vel og vandlega yfir meiðslasögu sína, sem lengist því miður sífellt. Hann viðurkennir að staðan sé erfið og framtíð hans sem knattspyrnumanns í óvissu en hann heldur þó í vonina og ætlar sér að ná sér góðum á nýjan leik, hvenær sem það verður.
Ástæðan fyrir því að Kolbeinn hefur ekki spilað fótbolta síðan á EM í sumar er að hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli í vinstra hné. Skömmu eftir að Nantes lánaði hann til tyrkneska stórliðsins Galatasaray í upphafi tímabilsins var staðan orðin það slæm að ákveðið var að hann myndi fara í aðgerð og skrapað yrði af liðþófanum.
Forsagan er þó löng og flókin.

„En svo hefur eitthvað gerst. Mögulega var það í síðasta deildarleiknum með Nantes í vor, þar sem ég stífnaði upp í hnénu.“
Kolbeinn var tæpur fyrir EM í sumar, einnig vegna meiðsla í hægra hné, en náði að verða leikfær og spila alla leiki Íslands í keppninni.
Óhætt er að segja að hann hafi átt frábært mót, eins og svo margir aðrir í íslenska liðinu.
Gat ekki hlaupið á æfingu
Í byrjun september, eftir að gengið hafði verið frá félagaskiptunum til Tyrklands, hitti Kolbeinn landsliðið í Þýskalandi.„Ég fann að ég gat ekki hlaupið. Þá var ég sendur aftur til Galatasaray og strax næsta dag vildu þeir að ég myndi fara í aðgerð. Hún var framkvæmd 5. september.“
Síðan þá hefur batinn ekki verið nægilega góður.
„Hnéð bólgnaði upp og ég átti erfitt með gang. Það tók langan tíma að ná bólgunum úr mér og reynt að flýta fyrir því með alls konar sprautumeðferðum til að losa út vökva. En hann kom alltaf aftur.“
Kolbeinn gerði allt sem hann gat. Hann fór til Barcelona til að fara í meðferð hjá færustu læknum Evrópu, svo til Noregs þar sem hann var í meðferð hjá hnykkjara. Honum leið vel eftir það.

Á jóladag fór hann í myndatöku og var þá enn og aftur kominn vökvi inn á hnéð. Þar með varð ljóst í hvað stefndi. Samningnum var rift og Kolbeinn kom heim til Íslands nokkrum dögum síðar.
Bauðst til að spila frítt
Kolbeinn ber engan kala til Galatasaray, þvert á móti. „Ég skildi þeirra ákvörðun mjög vel. Þetta er frábær klúbbur og afar vel komið fram við mig. Mér fannst ég vera á besta mögulega staðnum fyrir mig,“ segir hann.„Ég bauðst til að spila frítt með liðinu eftir áramót. Ég var það viljugur að vera áfram. En þeir gátu ekki fengið annan leikmann inn nema með því að losa mig. Það var því ekki hægt.“
Kemur þá að þætti Nantes og Kita-feðganna. Waldemars forseta og Francks framkvæmdastjóra. Haft var eftir Kita eldri í L'Équipe í Frakklandi að félagið hefði aðeins verið í mjög takmörkuðu sambandi við Andra, bróður Kolbeins, og að Kolbeinn væri í raun týndur á Íslandi.
Kolbeinn getur ekki annað en brosað.

Og hann segir að orð forsetans um að hann hafi ekki rukkað laun séu aukaatriði.
„Ég er ekkert að pæla í launum núna. Ég er bara að hugsa um að fá mig góðan af meiðslunum.“
Alvarlegt að fara í aðra aðgerð
Fram undan er mögulega önnur aðgerð, segir Kolbeinn. Hann bíður þess nú að fá leyfi félagsins til að fara í aðgerðina, en það er það sem íslenskir læknar vilja og læknar Galatasaray taka undir það.„Það var fyrst í gær sem við heyrðum að Nantes vildi fá mig út í læknisskoðun. Ef svo er þá fer ég út og tek ákvörðun um framhaldið eftir það. Enda færi ég aldrei í aðgerð án leyfis félagsins.“
Að láta skrapa liðþófann í annað sinn er háalvarlegt mál fyrir knattspyrnumann. Og það veit Kolbeinn manna best.
„Besta lausnin er að byggja hnéð upp án aðgerðar. Styrkja það og liðböndin, losa um það og fara í sprautumeðferðir. Það hef ég reynt. Ég hef gert allt sem ég hef getað gert. En niðurstaðan er sú að ég er ekki orðinn betri. Það er ekki ákjósanlegt að fara í aðra aðgerð en óvissan yrði líka mikil ef ég færi ekki því ég veit ekki hvenær ég mun jafna mig.“

Mjög áhyggjufullur yfir stöðunni
Það er engin betri leið að spyrja Kolbein en beint út:Óttast hann um ferilinn? Að meiðslin séu það alvarleg að hann óttist að hann muni mögulega ekki spila sem knattspyrnumaður í fremstu röð á nýjan leik?
„Það er allavega óvissa,“ segir hann.
„Ég vona að aðgerðin heppnist vel og að ég geti spilað aftur sem allra fyrst. En ég er sjálfur mjög áhyggjufullur yfir þessari stöðu enda komnir fimm mánuðir frá fyrri aðgerðinni og tíminn tifar. Auðvitað hef ég hugleitt það [að ferillinn sé í hættu], enda búinn að vera úti í 4-5 mánuði og mikið einn.“

„Svo fékk ég þennan skell og það hefur verið erfitt,“ viðurkennir Kolbeinn, sem hefur þó getað haldið sér í jafnvægi og forðast þungar hugsanir.
„Ég reyni sem minnst að pæla í svona hlutum. Það hef ég lært af gömlum meiðslum. Þá fyrst fer þetta allt að hellast yfir mann. En ég hef komið mér úr erfiðum meiðslum áður og mun gera það aftur núna.“
En hann saknar líka félaga sinna úr íslenska landsliðinu.
„Ég hef sársaknað þess að spila ekki með landsliðinu. En þetta hefur farið vel af stað hjá þeim og það er vonandi að þeir haldi áfram að standa sig vel. Mitt markmið er að koma aftur inn í lok undankeppninnar [í haust] af fullum krafti og í toppformi. Ég ætla bara að horfa fram á veginn.“