Ungverjar komnir á blað | Annar sigur Egypta Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. janúar 2017 18:22 Nandor Fazekas getur verið erfiður viðureignar í markinu. vísir/epa
Ungverjaland náði í sín fyrstu stig á HM 2017 í handbolta í dag þegar liðið lagði Síle, 34-29. Ungverjar töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum á móti Þýskalandi og Króatíu. Sigurinn var nokkuð torsóttur fyrir Xavi Sabate og hans menn en hann þjálfar líka Aron Pálmarsson hjá ungverska meistaraliðinu Veszprém. Þegar fimmtán mínútur voru eftir var Ungverjaland aðeins með tveggja marka forskot, 27-25. Ungverska liðið gekk frá leiknum á lokasprettinum og vann á endanum fimm marka sigur. Þó alls ekki nógu sannfærandi frammistaða hjá þessu annars vel mannaða liði. Iman Jamali var markahæstur Ungverja í dag með sjö mörk úr átta skotum en Adam Huhasz skoraði fimm mörk líkt og leikstjórnandinn magnaði, Maté Lekai. Gamla kempan Nandor Fazekas varði átta skot í markinu. Ungverjar eru nú með tvö stig í C-riðli og eru í baráttunni um þriðja sætið en eins og búist var við eru Þýskaland og Króatía að berjast um efsta sætið. Í D-riðli vann Egyptaland tveggja marka sigur á Barein, 31-19. Þrjú lið frá austurlöndum fjær eru í riðlinum og er Egyptaland með fullt hús í þeim slag, en það vann Katar einnig með tveimur mörkum í fyrstu umferðinni. Yehia elderaa var markahæstur Egypta í leiknum með sex mörk í sex skotum en Eslam Eissa skoraði fimm mörk úr sex skotum. Egyptaland er með fjögur stig líkt og Danmörk og Svíþjóð en þau mætast í kvöld í Íslendingaslag.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira